Ásta Indía Valdimarsdóttir
þriðjudagur, september 30, 2003
  Hæ.
Ég gleymdi að segja ykkur frá einu. Ég fór nefnilega í hörputíma um helgina hjá henni Gunnhildi vinkonu mömmu minnar. Ég var rosa góð og fann alla rauðu strengina og bláu/svörtu strengina, ég taldi þá alla og gat alveg plokkað strengina vel og svo spilaði ég meira að segja Gamla Nóa. Þetta var rosa stuð. Ég spilaði á litla hörpu og á risastóru hörpuna hennar, en hún Gunnhildur ætlar að reyna að finna enn minni hörpu sem hentar mér betur og kannski bara kenna mér á hörpu.
Góða nótt.
Ásta Indía. 
  Hæ aftur
Mömmu langar svo til að breyta síðunni minni og gera hana flottari en hún kann það ekki. Sömuleiðis að laga íslensku stafina hérna efst. Hún ætlar að athuga hvort Sigurgeir pabbinn hennar Salnýju Kaju frænku minnar geti hjálpað sér. Ég er búin að fara í leikskólann minn í dag, en hann heitir peuterspeelzaal á hollensku. Mér finnst rosa gaman í leikskólanum mínum og bestu vinirnir mínir heita Angela og Halid. Angela er frá Makedóníu og Halid er frá Tyrklandi eða Marokkó, ég er ekki alveg viss. En hinir krakkarnir í skólanum heita Nermine, Amina, Malisa, Nousra, Sarfras, Osama, Halim og Micheal. Í dag átti Sarfras afmæli og ég fékk þá nammipoka með mér heim. Ég kann núna nokkur orð í hollensku og er farin að geta raðað þeim aðeins saman. Eins og Ik ook meer sem þýðir ég vil fá líka meira og olifanter þýðir fíll og flinder þýðir fiðrildi. Svo kann ég fullt af hollenskum lögum.
Svo fórum við mamma í gær í nýjan skóla að skrá mig, því í Hollandi þá byrja allir krakkar í skóla 4 ára og ég má byrja í skólanum í janúar, þá má ég byrja í aðlögun og vera bara á morgnana en 12. febrúar þegar ég á afmæli þá má ég vera alla daga allan daginn. Þá fer ég bara með mömmu og pabba eitthvert í hádeginu og fer svo aftur í skólann. En þessi skóli er rosa nálægt skóla mömmu og pabba, það verður auðveldara fyrir þau að ná í mig alltaf.
Jæja ég ætla að leyfa mömmu að fara að æfa sig.
Bless í bili.
Ásta Indía. 
 
smá prufa því ég er að hugsa um að byrja á þessu aftur í staðinn fyrir að fá heimasíðu hjá barnalandi.
Kv.
Ásta Indía. 
 
núna er ég flutt til Hollands og er að hugsa um að fara að endurvekja þessa dagbók þannig að allir vinir mínir á Íslandi geti fylgst með mér. Sjáum til hvernig það gengur.
Kveðja
Ásta Indía. 
Hæ hæ. Hér erum við að hugsa um að segja fréttir af okkur, en aðallega af Ástu Indíu, svo vinir okkar og fjölskylda á Íslandi og víðar geti fylgst með okkur í Hollandi.

ARCHIVES
08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 /


Powered by Blogger

Free Guestbook from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Free Photo Center from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Sendið Fjólu póst
Sendið Valda póst
Svona er veðrið í Amsterdam:
The WeatherPixie

Weblog Commenting by HaloScan.com