Ásta Indía Valdimarsdóttir
sunnudagur, desember 21, 2003
  Jæja, heimferð í dag, eða öllu heldur í kvöld. Flogið verður klukkan 22:15 og lending er kl. 00:25 á íslenskum tíma. Mikill spenningur er í okkur, ég hvessi mig við alla og Ásta Indía vill knúsast endalaust og Valdi, jæja Valdi er bara Valdi.
Gluggagægir kom í nótt og gaf Ástu Indíu engil til að hengja uppá tré. Þetta er ekki hinn hefðbundni engill heldur er þessi bleikum og gyltum kjól, dökkhærð með gylta vængi. Rosa flott. Hún varð strax mjög góð vinkona álfadrottningarinnar sem Stekkjastaur gaf Ástu Indíu.
Við erum bara í því að pakka núna og klára að þrífa fyrir heimferðina.
Þetta verður þá síðasta bloggið frá Amsterdam á þessu ári, veit ekki hversu dugleg ég verð að skrifa á Íslandi, en sjáum til.
Jæja við sjáumst þá bara.
Bless í bili.
Fjóla Dögg.
 
laugardagur, desember 20, 2003
  Halló!
Ég var að setja inn tvær myndir. Önnur fór í jólamöppuna og þar er jólaboð í leikskólanum. Krakkarnir sitja við langborð og bíða eftir að fá kræsingarnar. Hin myndin er í heimilismöppunni sem ætti eiginlega að vera heimili og umhverfi, þar sem ég vissi ekki alveg hvert ég ætti að setja þessa mynd. Það er fugl á þessari mynd og eftir að við Ásta Indía breyttum leiðinni í leikskólann þá hittum við hann daglega. Hann er alltaf einn við síkið okkar og er yfirleitt bara um miðjan daginn þarna. Hann stendur alltaf rosalega kyrr og stundum starir hann ofan í síkið og teygir úr sér. En þennan dag þá sáum við hann labba yfir götuna til að horfa á bílinn. Við höfum séð anna svona fugl stara á málmplötu á hurð hér í einni götunni. Greinilega svolítið glysgjarnir. Það er frekar mikið um þessa fugla hérna, en þessi er alltaf einn þegar við sjáum hann.
Nú vantar mig fuglasérfræðing, hvernig fugl er þetta?

Ég ætlaði að setja inn eina skautamynd, en ég get það ekki, ég er hræðileg á þeim, því miður.

Bless í bili.
Fjóla. 
  Hæ hæ
Bjúgnakrækir kom í nótt með teygjur með stjörnum á. Þessi gjöf uppskar vááááá. Strax voru settar 2 fléttur í hárið með nýju teygjunum. Áðan var farið í bæinn. Valdi og Ásta Indía fóru saman og ég hitti þau svo seinna. Þá fórum við á Dam torgið og leigðum okkur skauta, þ.e. ég og Ásta Indía fórum á skauta. Þetta hefur verið langþráður draumur hjá stelpunni að fá að komast á skauta þannig að við skelltum okkur. Úff, fjölskyldan mín veit hvernig ég var á hátindi skautaferilsins míns og það var ekki fallegt. Við fórum á svellið og ég leiddi hana og ríghélt mér í vegginn. Svellið var líka svo blautt þannig að það var alveg extra sleipt. Við sem sagt komumst ca. 3 metra meðfram veggnum áður en ég datt á rassinn. Ég tók Ástu indíu með mér þó hún vilji bara viðurkenna að hún hafi aðeins misst jafnvægið og hafi bara þurft að sveifla höndum aðeins. Ég ætlaði nú varla að komast á fætur aftur og var Ásta Indía mín búin að fá nóg af skautum og var orðin hrædd og vildi komast. Þannig að þetta var ansi stutt en dýr skautaferð.
Komum heim á morgun!!! Reyndar mjög seint þannig að við sjáum eiginlega engan fyrr en á mánudaginn.
Bless í bili.
Fjóla.
 
föstudagur, desember 19, 2003
  Hæ hæ
Í gær þegar Ásta Indía vaknaði þá fann hún armband og hring í skónum sínum. Hurðaskellir hafði skilið það eftir handa henni. Henni finnst það rosalega flott og kúl og segir að það sé jólalegt. Þetta er sko allt með bleikum demöntum.
Í gær var líka jólaskemmtun í leikskólanum hennar. Allir áttu að koma með eitthvað og hún tók með sér piparkökur, sem slógu víst alveg í gegn, það komu mjög fáar með henni heim aftur. Allir voru fínir og sætir og fengu gott að borða og fengu að sjá söngleik hjá eldri krökkunum í skólanum um litlu stúlkuna með eldspýturnar. Ef einhver á Íslandi finnur bók með sögunni þá langar mig í hana fyrir Ástu Indíu. Það voru allir rosa kátir þegar ég sótti stúlkuna og allir fengu litabók og tréliti og tússliti frá jólasveininum.
Svo fór Ásta Indía í pössun til Finns og Tótu því hún er Finnsstelpa og Tótustelpa. Þegar ég sótti hana þá voru þær Ásta og Tóta búnar að gera margar blaðsíður í litabókinni. Þar sem allir voru orðnir svangir þá fengum við að borða hjá þeim líka. Valdi er sko í Þýskalandi og var að spila fyrir yfirmenn Mercedes Benz í gærkvöldi. Eftir mat þá þurftum við náttúrulega að drífa okkur heim til að ná í bólið áður en næsti jólasveinn kæmi. Á leiðinni heim kom mikill blómaandi yfir stelpuna og heyrði ég allt í einu: "Mamma, ég elska alla, ég elska alla sem ég þekki".
Svo var farið í rúmið. Núna er rosalega mikilvægt að hennar mati að hún sofi í fötunum og þessa dagana þá sofnar hún í öllum fötunum og vaknar svo í náttfötum.
Svo er hún með kæk. Hún segir bara aha og mhmm en aldrei já.
Í morgun braust út mikill fögnuður þegar kíkt var í skóinn, og n.b. þetta var fyrsti morguninn þar sem hún mundi sjálf eftir að kíkja í skóinn. Í skónum var lítill playmo kassi frá skyrgámi, við höldum reyndar að það sé afi Sverrir því hann er alltaf að borða skyr eða er það kannski amma Ásta hún er líka alltaf að borða skyr. " Og ég líka" segir hún svo í öllum þessum pælingum.
Nú eru bara 2 dagar í að við komum heim.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Bless í bili.
Fjóla.
 
miðvikudagur, desember 17, 2003
  Hæ hæ.
Askasleikir kom með veski til Ástu Indíu. Ásta Indía var voðalega ánægð og var að dást að því þegar hún fattaði eitt. "Hey þetta passar við nýja jakkann minn"! Það er alveg ótrúlegt hvað þessir jólasveinar geta stundum verið sniðugir. En hún er alveg harðákveðin í því að hún ætlar sko að nota þetta um jólin, en hana vantar samt helst eitthvað jólalegt til að hafa ofaní veskinu.
Ásta Indía var í gífurlega góðu skapi í dag. Ég sótti hana í skólann og fór með hana í skólann minn. Þar tók á móti okkur hún Melkorka, sem passaði á meðan ég fór í spilatíma. Þegar ég hitti þær aftur voru þær umkringdar af fólki. Vinir hennar Melkorku voru búin að splæsa í hana safa og gefa henni kex. Þau voru búin að púsla púslunum sem við tókum með okkur og þar sat hún í aðdáunarbaði. Hún slær sko alltaf í gegn þegar hún kemur í skólann, við erum sko viðundur að eiga barn. Fólki finnst þetta voðalega merkilegt. Svo var hún bara í því að knúsa og kyssa og sagðist vera mömmustelpa og Melkorkustelpa og Gunnhildarstelpa og Tótustelpa og pabbastelpa og líka ömmustelpa og Sörustelpa og Sörudlís hahahahaha það var sko tilefni til gerfihlátursins háværa þar sem hún stóð uppá stól.
Svo vorum við að hjóla og þá skellir hún allt í einu uppúr og segir "veistu hvað ég var að hugsa? Manstu þegar ég var í heimsókn hjá Aroni Lúis og við fórum til pabba hans í heimsókn og svo sváfum við þar einu sinni og svo þegar við vöknuðum þá gaf pabbi hans mér svona eins og ykkur finnst svo gott." (innsk. mamma "múslí?") "já múslí það var með rúsínum og súkkulaði (henni fannst það sko ekki gott) svo sagði pabbinn hans "wil je appel drinken?" og þá sagði Aron Lúis "viltu fá epladrykk" hahahaha rosa fyndið" Góð saga.

Við komum heim eftir 4 daga. Sjáumst þá!
Fjóla.
 
þriðjudagur, desember 16, 2003
  Halló.
Pottaskefill kom í nótt með engil á priki, það er engill á blýanti, það átti sko eftir að ydda hann. Svo var tekið til við að skrifa. ÁSTAINDÍA. Mamma skrifa þú: FJÓLA DÖGG VALDI KOLLI. Velkomin öll í einu. Hvað fékkstu í skóinn? Þetta er fyrir Mörthu. Mörthu? spurði ég. Já mannstu ekki hún er hjá langömmu Fjólu. Auðvitað man ég eftir Mörthu.
Við komum heim eftir 5 daga!
Og jólin eru eftir 8 daga!
Gaman gaman
Sjáumst!
Fjóla.
 
mánudagur, desember 15, 2003
  Hæ hæ
Þvörusleikir kom í nótt, hann stal engum þvörum þrátt fyrir mikinn bakstur og eldamennsku með þvörum í gær.
Þetta var reyndar smá stress fyrir svefninn, henni Ástu Indíu leist ekkert á kvæðið um jólasveinana og vildi sko ekki fá Þvörusleiki inn. En hann kom og gaf henni í skóinn og stal engu. Hún fékk tvö pinkulítil hörundsdökk börn, strák og stelpu. Henni fannst þetta nú ekkert voðalega tilkomumikið, en er samt sem áður búin að leika sér með þau síðan hún vaknaði.
Já annars var jólabakstur í gær, við Ásta Indía gerðum kanilsnúða í gær og jólaköku, enga Valda afa jólaköku, en samt jólaköku með rúsínum því okkur finnst rúsínur rosalega góðar. Svo gerðum við mömmukökur. Ég á reyndar ekkert kökukefli hérna, það er á Íslandi þannig að ég flatti út með krukku. Mömmukökurnar þar af leiðandi eru frekar þykkar og krumpaðar og ójafnar, eiginlega bara mjög flottar og artí. En þetta er allt rosalega gott, en við eigum eftir að smakka jólakökuna, hún lítur eitthvað skringilega út, er ekki alveg eins og þær jólakökur sem ég hef séð, en þetta er örugglega ætt samt.
Bless í bili.
Fjóla.
 
sunnudagur, desember 14, 2003
  Hæ hæ
Hér er jólaskapið í algleymingi. Íslensku jólasveinarnir leita að íslenskum börnum um allan heim og gefa þeim í skóinn. Stekkjastaur kom fyrstur og setti álfadrottningu í skóinn hjá Ástu Indíu. Hún vill reyndar kalla hana Tinkerbell, sem er Skellibjalla á íslensku og er vinkona Péturs pan þó hún sé ekkert lík henni. Þessi er með sítt ljóst hár, í rosa flottum hvítum kjól, með kórónu og sprota. Giljagaur kom annar og gaf Ástu Indíu lítið box með mynd af Öskubusku á og ofan í boxinu eru teygjur og spennur. Stúfur kom í nótt og gaf henni pinkulítið Bubba byggi púsl. Þetta er 54 púsla púsl fyrir 5 ára og eldri, en Stúfur veit að Ásta Indía púslar svoleiðis púslum eins og ekkert sé þó hún sé bara 3ja ára.
Giljagaur þurfti sko að leita að Ástu Indíu því hún var heima hjá Finni og Tótu í pössun. En hann fann hana sem betur fer.
Ástu Indíu finnst rosa gaman í pössun hjá Tótu og Finni og fær að gista uppí hjá þeim og kúra með Skottu, músina hennar Tótu.
Ég sótti Ástu Indíu um hádegi í gær og við hjóluðum heim í roki og rigningu, maður fékk bara næstum því heimþrá þetta var eitthvað svo íslenskt veður. Alla vegna þegar við vorum komnar heim þá tókum við á móti Ívu Marín og Ingu mömmu hennar því við ætluðum að baka piparkökur saman. Á meðan Ásta Indía sýndi Ívu Marín dótið sitt þá gerðum við mömmurnar deigið og svo sátu stelpurnar og skáru út mynstur og gerðu piparkökuorma og kyrkislöngur og kúlur. Þetta voru rosalega flottar og góðar piparkökur. Við hlustuðum líka á jólalög og stelpurnar léku sér meir og dönsuðu líka.
Ég set inn myndir, en nú er ég komin með svo margar myndir að ég er farin að þurfa að henda út myndum svo ég geti sett inn nýjar. Piparkökumyndirnar verða í jólamöppunni.

Afmælisbarn dagsins í dag er langamma Rósa!!! Hún er jafn gömul langafa Guðmundi.
Til hamingju með afmælið langamma Rósa!!!!

Bless í bili.
Fjóla.
 
  Halló
Jólagleðin er við ríki hér hjá okkur. Skórinn er kominn útí glugga og þetta litla jólaskraut sem við eigum hér er komið upp. Ég fór meira að segja í búð og keypti eina seríu til að setja útí glugga. Íslensku jólasveinarnir fara sko í ferðalag og leita að íslenskum börnum hvar sem þau eru og gefa þeim í skóinn. Stekkjastaur kom fyrst og gaf álfadrottningu sem Ásta Indía kallar Tinkerbell sem heitir Skellibjalla á íslensku, hún er vinkona Péturs pan. Þetta er rosalega falleg álfadrottning í hvítum kjól með rosa sítt hár og kórónu og sprota. Giljagaur kom með lítið box með mynd af Öskubusku á. Ofan í boxinu voru teygjur og spennur. Stúfur kom svo með lítið púsluspil með mynd af Bubba byggi. Þetta er 54 púsla púsl fyrir 5 ára og eldri en Stúfur vissi alveg að Ásta Indía púslar svona erfiðum púslum eins og ekkert sé. Reyndar þá þurfti Giljagaur sko að leita vel að Ástu Indíu á föstudaginn því hún var í pössun hjá Finni og Tótu, en hann fann hana sem betur fer.
Ástu indíu finnst voðalega gaman að fara í pössun til Finns og Tótu og sérstaklega að fá að gista, þá fær hún að sofa uppí hjá þeim og sofa með Skottu músina hennar Tótu.
Ég sótti Ástu Indíu um hádegi til Tótu og Finns og við þurftum þá að hjóla heim í íslensku veðri, roki og rigningu. Við fórum heim og tókum á móti Ívu Marín og Ingu mömmu hennar og við bökuðum piparkökur saman. Það var rosa gaman, stelpurnar léku sér fyrst saman og Ásta Indía sýndi Ívu Marín allt dótið sitt. Á meðan gerðum við mömmurnar piparkökudeigið, með engri hrærivél bara sleif og höndunum. En það gekk vel og við gerðum rosa góðar piparkökur. Stelpurnar skáru út munstur og gerðu piparkökuorma og kyrkislöngur og kúlur. Svo hlustuðum við á jólalög. Þetta kom okkur sko alveg í jólaskapið.
Ég tók myndir og set eitthvað inn, en ég er komin með hámarks myndir inn í albúmið þannig að nú þarf ég að taka myndir út til að geta sett inn nýjar myndir. Ég set piparkökumyndir í jólamöppuna.
Bless í bili!
Fjóla.
 
fimmtudagur, desember 11, 2003
  Jæja ferðasagan.
Ég sótti Ástu Indíu í skólann í gær og við fórum á metróstöðina upp á central station og tókum lest til Haag og svo tramma heim til Andrésar og Siggu og Þórdísar og Árna Dags og Bjarka Dan. Andrés hefur oft spilað með Valda og spilar á gítar, en Sigga var með mér í MH. Þórdís er 5 ára, Árni Dagur er 1 1/2 árs og Bjarki er 7 mánaða. Eldri krakkarnir léku sér mikið saman og fóru meira að segja útí garð að leika. Það var rosa gaman þar sem þau eru með aflokaðan garð með rennibraut og sandkassa. Sigga bakaði vöfflur í kaffi fyrir okkur. Þær voru rosa góðar með sultu og rjóma mmmmm.... Við fórum svo frá þeim fyrir kvöldmat svo við kæmum ekki of seint heim í háttinn. Ferðalagið var nú ansi langt, það tekur tæpan klukkutíma að fara með lest frá Amsterdam til Haag og svo vorum við held ég rúman hálftíma í tramma á leiðinn heim til þeirra þar sem þau búa í úthverfi Haag. Það voru þreyttar mæðgur sem komu heim þennan daginn.

Annars er allt jólastúss komið á fullt. Jólakortin að verða tilbúin til sendingar og pakkarnir skríða inn. Svo eru bara 10 dagar í að við förum heim. Rosalega stutt í það.

Jæja ekki meir í bili.
Fjóla. 
  Hann á afmælí dag
hann á afmælí dag
hann á afmælann afi Sigurjón
hann á afmælí dag!!!!!

Til hamingju með afmælið afi Sigurjón!!!!

Við fórum til Haag í heimsókn til vina okkar í gær, segi frá því seinna.
Bless í bili.
Fjóla
 
mánudagur, desember 08, 2003
  Hæ aftur.
Það er víst engin vinamappa lengur. Ég var búin að gleyma því að ég eyddi henni þannig að nú eru nýjar myndir í Ástu Indíu möppu og í fjölskyldumöppunni. Samtals fjórar nýjar myndir!!! Skoðið!!!
Um helgina þá gerðu Ásta Indía og Valdi hús í stofunni, þannig að ég setti inn myndir af því. Hún vildi endilega fá að sofa í húsinu og við gáfum henni smá stund til að prófa það en var svo færð yfir í rúmið sitt þar sem það gekk ekki upp. Svo er önnur mynd af okkur mæðgum sofandi og við erum í alvörunni sofandi. Valdi hefur náð myndinni án þess að við urðum þess varar. Svoldið góð mynd og lýsandi um morgnana hérna, fyrir utan það að það vantar Valda inná myndina, það er mjög óvenjulegt.
Valdi hitti Sinter Klaas á föstudaginn og Sinter Klaas lét Valda fá pakka handa Ástu Indíu. Í pakkanum var Bubba byggir jóladagatal og Sinter Klaas súkkulaði og Barbie tímarit um Svanaprinsessubarbíuna og með blaðinu fylgdi svanavatnsprinsessukóróna.
Jæja ekki meir í bili
Fjóla.
 
  Hæ hæ.
Við fórum í gær í heimsókn til Ívu Marínar og mömmu hennar, Ingu. Þær eiga heima ansi langt í burtu, en við ákváðum samt að hjóla þangað og vera samferða pabba í skólann. Pabbinn var að fara á æfingu og svo að fara að spila þannig að hann var með kontrabassa á bakinu og ótrúlegt en satt, náði að festa magnarann á stýrið hjá sér og hjólaði þannig. Við hjóluðum saman niðrí skóla sem tekur ca. 20 mínútur, sérstaklega á hægferð með mikinn farangur og svo tókum við Ásta Indía stefnuna til mæðgnanna. Það tók okkur örugglega annað korter að komast þangað. Og það var sko kalt. Æðislegt gluugaveður heiðskírt og sólskin en hitastig við frostmark og mjög þurrt, sem betur fer var ekki hvasst. En þær tóku vel á móti okkur. Stelpurnar léku sér vel og Inga bakaði rosalega góðar íslenskar pönnukökur. Svo fórum við aðeins út á róló með þeim, en það var svo kalt og járnið í leiktækjunum var svo kalt að við entumst ekki lengi úti. Við fórum aðeins inn aftur til að hita okkur fyrir heimleiðina og stelpurnar léku sér aðeins saman. Pabbi Ívu kom líka og heilsaði uppá okkur. Hann er hollenskur og heitir Arian. Þetta var rosalega skemmtileg heimsókn og erum við að hugsa um að hittast bráðum og föndra saman eða baka piparkökur eða bæði.
Þegar við vorum búnar í heimsókninni þá hjóluðum við á barinn þar sem Valdi var að spila. Staðurinn var í góðri fjarlægð þannig að við hjóluðum meira í kuldanum, sem betur fer vorum við ágætlega vel klæddar. Við hlustuðum á eitt og hálft lag og fórum svo þreyttar og svangar heim eftir langan og góðan hjóla og leikdag.
Bless í bili
Fjóla.

P.s. Ég set inn mynd af þeim vinkonunum. Kíkið í vinir mínir möppuna.
 
föstudagur, desember 05, 2003
  Hæ hæ
Fyrsta hitalausa nóttin er búin, en hún hóstaði bara þeim mun meira í nótt. Ég veit ekki hvað ég vaknaði oft í nótt, fyrir utan öll skiptin þar sem ég fór inn til hennar áður en ég fór að sofa, úffff. En þá er bara allt að losna, er það ekki? Vonandi. En ég fór samt ekki með hana á Sinter Klaas hátíð í morgun í skólanum, mér finnst hún enn of slöpp. Í dag er sem sagt afmæli Sinter Klaas og halda Hollendingar og Belgar víst upp á þennan dag sem svona jól. Það fá alla vegna allir pakka og fjölskyldur borða saman góðan mat. Í rauninni hefur þessi dagur verið aðaljóladagurinn þeirra og margir eru búnir að setja upp jólatré núna. Þess vegna finnst mér svolítið skrýtið að horfa út um gluggann og sjá allar búðir opnar, meira að segja bankinn er opinn.
Þannig að það er spurning um að skreyta aðeins. Sjáum til.
Fjóla.
 
fimmtudagur, desember 04, 2003
 
Hún er ennþá veik, er með ca. 38 stiga hita og hósta, en er samt nokkuð hress og leikur sér, en verður þreytt inn á milli og vill að einhver sé hjá sér og það þýðir að maður á að halda á henni eða kúra með henni, alla vegna verður hún helst að ná í hár þá til að fikta í.
Bless
Fjóla.
 
miðvikudagur, desember 03, 2003
  Jæja, ég náði að smita hana. Hún vaknaði brennandi heit og hóstandi í nótt. Og já ég er að tala um Ástu Indíu. Hún fékk stíl og er bara nokkuð hress núna. Hún verður að vera orðin alveg hress fyrir föstudaginn því að þá er Sinter Klaas hátíð í skólanum hennar.
Það var verið að laga sjónvarpið okkar áðan, það hefur snjóað ansi lengi í sjónvarpinu, en nú hefur létt til. Þvílíkur munur, sérstaklega þegar maður er veikur og ekki í miklu stuði til að leika sér.
Ásta Indía er farin að spila á spil. Hún kann veiðimann, steliþjóf og svarta Pétur. Ég kenndi henni svarta Pétur í gær í tilefni Zwarte Piet og henni fannst æðislegt að enda með svarta Péturinn. Ég hefndi mín og málaði nefið hennar svart, því það gerði Katrín systir alltaf við mig þegar við spiluðum svarta Pétur þegar ég var lítil. En mér fannst það nú ekki eins gaman og Ástu Indíu.
En ég leyfi ykkur að fylgjast með veikindunum.
Bless í bili
Fjóla.
 
þriðjudagur, desember 02, 2003
  Hæ hæ
Ekki mikið að frétta af Ástu Indíu, ég virðist þó hafa náð að smita hana aðeins, alla vegna er hún farin að sjúga upp í nefið og hósta. Annars hress.
Langafi Guðmundur átti afmæli í gær og við óskum honum til hamingju með það þó hann sé ekki með internet heima hjá sér.
Það er rosa spennandi hlutir að gerast í götunni. Hér fylltist allt af lögreglubílum og öðruvísi bílum, einni þvergötunni var lokað og í henni var risastór krani mættur á svæðið. Svo fór þyrla að sveima um, en þar sem við sáum að allir voru voðalega rólegir þá ákváðum við Ásta Indía að kanna málið. Þá er niðurstaðan sú að vídeóleigan hérna á móti okkur kvartaði yfir vondri lykt úr kjallaranum og kom í ljós mjög mikil illgresisrækt. Þetta var svo mikil rækt að þetta komst ekki út um framdyrnar og þess vegna var kraninn. Menn eru þarna í efnabúningum og með grímur og setja illgresið í lítinn gám sem kraninn hífði yfir í bakgarðinn og svo hífir kraninn litla gáminn aftur yfir og tæmir hann í stóran gám sem er á götunni. Eins og er þá er gámurinn örugglega búinn að fara 10 ferðir yfir húsin. Voðalega gaman að fylgjast með þessu úr glugganum hjá okkur.
Ekki meira í bili.
Fjóla.
 
Hæ hæ. Hér erum við að hugsa um að segja fréttir af okkur, en aðallega af Ástu Indíu, svo vinir okkar og fjölskylda á Íslandi og víðar geti fylgst með okkur í Hollandi.

ARCHIVES
08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 /


Powered by Blogger

Free Guestbook from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Free Photo Center from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Sendið Fjólu póst
Sendið Valda póst
Svona er veðrið í Amsterdam:
The WeatherPixie

Weblog Commenting by HaloScan.com