Ásta Indía Valdimarsdóttir
laugardagur, nóvember 29, 2003
  Halló halló.
Hef ekki verið í stuði að skrifa, ég missti röddina og kvefaðist og veiktist svo. En í dag var smá Sinter Klaas hátíð í götunni okkar og ég náði myndum af Zwarte Piet og Sinter Klaas þegar þeir fóru framhjá. Þannig að það er komin ný mappa inní myndaalbúmið sem heitir jól 2003 og þar verða líka Sinter Klaas myndir. Ásta Indía og Valdi fóru í bæinn í dag þannig að þau misstu af skrúðgöngunni hér fyrir utan, en þau komust samt í feitt í bænum. Þar hittu þau Sinter Klaas sem heilsaði Ástu Indíu með handabandi og sagði að hún væri með flott hárband. Ásta Indía var rosalega hugrökk og sagði "ja". Svo sáu þau marga Zwarte Piet líka. ÞAð var voða gaman hjá þeim.
Svo verður farið með skóinn í skólann á mánudaginn því þeir gefa börnum líka í skóinn en samt bara einu sinni. Annars er Sinter Klaas hátíðin á föstudaginn og þá verður smá prógram í skólanum. En svo verður líka jólahátíð fyrir jólin.
jæja ekki meira í bili
bless, bless
Fjóla
 
þriðjudagur, nóvember 25, 2003
  Halló!
Þegar ég sótti Ástu Indíu í leikskólann í gær þá mættu mér kennarar sem áttu bara ekki orð yfir hæfileikum stelpunnar. Hún hefði teiknað mynd af Zwarte Piet og Sinter Klaas og Sinter Klaas var með rétta höfuðfatið og Zwarte Piet var svartur í framan. Þeim fannst hún svo flott að myndin var hengd sérstaklega uppá vegg. Þessir krakkar eru varla farin að teikna hausa með fætur og hendur. Mér finnst það nú eiginlega skrýtið. Alla vegna, þá náði hún þessu mjög vel. Svo var verið að æfa þau í að klippa. Þau fengu öll svona dótabúðablöð og máttu klippa út það sem þau vildu. Allir klipptu bara einhvern veginn en Ásta Indía er náttúrulega þaulæfður klippari og klippti út mynd af Barbie Mjallhvít og einum dverg. Hún var sú eina sem gat klippt markvisst. Annað hvort er dóttir okkar svona líka brilliant eða krakkarnir eru aðeins á eftir. Ég held satt að segja að þetta sé blanda af hvoru. Alla vegna ekki meira mont í bili.
Blessó
Fjóla.
 
sunnudagur, nóvember 23, 2003
  "Mér finnst að ég eigi að bara horfa og tjilla". Þetta sagði Ásta Indía þegar hún kom heim af safninu þreytt. 
 
Það eru komnar nýjar myndir, inná Ástu Indíu og inná heimilismöppunni.
Helst í fréttum er að við erum að fara á skipasafnið hérna í dag og þar ætlum við að hitta íslenskar mæðgur, þær Gígju, sem er 3ja ára og Karen, sem er mamman. Við erum náttúrulega ég og Ásta Indía. Það er prógram í gangi í þessu safni með hollenska jólasveininum Sinter Klaas og hjálparsveinunum Zwarte Piets. Sinter Klaas er heilagur Nikulás sem kemur frá Spáni, en svörtu Pétrarnir eru svartir, yfirleitt hvítir menn málaðir eins og litli svarti Sambó. Þeir eiga að koma frá Tyrklandi og ræna óþekkum börnum. Annars þá halda Hollendingar uppá afmæli Sinter Klaas 5. desember, þá fá allir krakkar pakka frá Sint en Piet og fá í skóinn líka held ég. Annars er ég ekki alveg inní þessu en við erum að reyna að læra um þetta. Þetta virðist vera aðal pakkatíminn því allt er komið á fullt í gjafainnkaupum og það er byrjað að selja jólatré á heimilum. Áður fyrr var þetta jólahátíðin en nú halda flestir líka uppá jólin 25.des, en ekki allir.

Þegar Ásta Indía horfir á DVD diskana sína þessa dagana þá vill hún alltaf fá að horfa á þá á öðrum tungumálum en íslensku og hollensku. Hún vill þá stundum horfa á á ensku, en nú vill hún fá hin tungumálin, sænsku, rússnesku, pólsku eða tvænsku. Ég er eitthvað hrædd um að þetta rugli hana í ríminu, en kannski ekki.

Einnig er kominn nýr linkur inná aðra Stubbasíðu, en þar eru miklu fleiri verkefni og fleiri myndir.

Bless í bili
Fjóla
 
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
  Hæ aftur
Ég mundi eftir því sem ég ætlaði að segja um leið og ég var búin að setja textann inn. Við fengum pakka með póstinum í dag! Frá ömmu Ástu! Takk amma þetta kom sér mjög vel í dag. Hún er búin að leika sér með playmoið og horfa á litlu hafmeyjuna. Og sleikjóarnir bíða eftir næsta nammidegi. Takk takk og kyss og knús.

Við fengum okkur prentara í dag í boði afa Sigurjóns. Takk fyrir það. Ásta indía tölvugúrú er strax búin að læra á hann og byrjuð að prenta út stubbamyndir til að lita.

Sem minnir mig á það að ég fann aðra stubbasíðu sem er með miklu fleiri leikjum og myndum. Set linkinn inn.

Blessó. 
  Hæ hæ
Frekar þreytt mamma hérna. En ég kom seint heim úr afmæli í gærkvöldi og þegar ég var alveg að sofna um kl. hálf 3 þá rumskar lítil stelpa. Ég kíki inn til hennar og reyni að sannfæra hana um það að rúmið hennar sé miklu betra en mitt og svo bara byrjar hún að gubba. Þannig að næsti hálftíminn fór í það að klæða hana úr, þvo hárið hennar og setja öll rúmfötin og náttfötin í þvottavél eftir að búið var að skola úr þeim. Svo var bara allt búið. Hún var reyndar örugglega með smá hita í nótt, en er búin að vera alveg hitalaus í dag, en samt heima. Ég sendi Valda inní stofu til að sofa svo við myndum sofa betur, en þá gat Ásta Indía ekki sofnað. Henni fannst svo kósí að vera uppí okkar rúmi með mér að hún var eitt sólskinsbros. Vonandi verður þetta ekki nýjasta aðferðin til að fá að sofa uppí hjá okkur. Nei nei, hún var með magaverki í allan gærdag þannig að þetta hefur verið stutt magakveisa. Hún er búin að vera fín í dag alla vegna. En við Ásta Indía sofnuðum ekki fyrr en hálf 5 held ég aftur, en Valdi var svo góður að taka við henni í morgun þannig að ég fékk einhvern svefn.

Ég ætlaði að segja ykkur frá einhverju öðru en man ekki hvað það var. Þannig að það kemur seinna.

Bless í bili
Fjóla
 
sunnudagur, nóvember 16, 2003
  Hæ hó
Ásta Indía er að byrja að stafa. Hún var að tala um hælinn á sér um daginn og sagði: "Hæll, það er L í hæll". Þannig að nú erum við farnar að æfa þetta og skoðum svona orð og hún er bara orðin nokkuð góð í þessu. Hún er líka hætt að vilja skrifa bull hún vill skrifa eitthvað með merkingu. Hún æfir sig ansi mikið á tölvuna einhversstaðar inná þessari Disney síðu þá er hægt að skrifa einhverri persónu póst. Þar reyndar skrifar hún bara fjölskyldumeðlimum bréf og kvittar undir og sendir. Sem dæmi um bréf sem hún hefur sent er meðal annars: "Elsku Halli velkominn til Íslands" og "Elsku Sara" Ég nenni yfirleitt ekki að stafa meira ofan í hana þannig að stuttar orðsendingar verða bara að duga. En þar sem þessi bréf komast aldrei á réttan stað þá eru alla vegna Halli og Sara búin að fá sínar sendingar. En hún er farin að rata vel um lyklaborðið og ratar vel á sína staði á netinu og í tölvunni og er greinilega að læra jafnóðum því hún er að skoða og leika leiki sem ég hef aldrei séð áður.
Annars voru kennararnir hennar að segja mér að hún hafi sagt fyrstu fjögurra orða setninguna sína. Það var á fimtudaginn. Hún sagði: "Wil, ik wil daar sitten" Eða Wil, ég vil sitja þarna. Þær voru voðallega stoltar af henni sem og foreldrarnir.
Jæja ekki meir í bili
Góða nótt.
Fjóla
 
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
 
Ég var að spá hvort ég ætti að koma með eina sögu í anda fyrstu blogga Salnýjar Kaju. Það er nefnilega svolítið fyndið að þegar hún er búin að gera númer 2 og ef hann heppnaðist vel og er vel stór, þá verður hún voðalega glöð og kallar: "Sjáðu! Pabbakúkur!!! Sjáðu!" Og það segir hún aðallega vegna þess að hann er stór og allt sem er stórt er pabba...eitthvað, en ekki vegna þess að hún hafi orðið vitni að meistaraverkum föður síns, bara þannig að það sé á hreinu. En stoltið er ansi magnað.

Annars er nýtt lag búið að bætast við uppáhaldslagalistann hjá henni. Nú í hópi Spaðanna og Glen Campell er Beyoncé með lagið Crazy like that og hún Ásta Indía er meira að segja byrjuð að læra dansinn hennar líka. Ég vildi að ég gæti sett myndbönd hérna inn líka því dansmúvin hennar eru rosaleg, hún er rosalegur rassadillari.

Svo fór ég í leikskólann með henni í morgun og náði einni mynd af hópnum, þetta er reyndar ekki sami hópur og er alla hina dagana. Miðvikudagar eru aukadagar í viku Hollendinga, margir taka sér frí á miðvikudögum, vikan er bara annars alltof löng. Ég set myndina inn. Ég reyndar náði svo ekki mynd í afmælinu þannig að hún kemur ekki.

Já og eitt í viðbót. Við Ásta Indía byrjuðum á jólakortaföndri í dag! Ótrúlega duglegar. Búnar með 10 stykki.

Bless í bili
Fjóla.
 
þriðjudagur, nóvember 11, 2003
  Hæ hæ.
Við Ásta Indía erum komnar með nýjan leik, sokkaleik. Þannig að þegar ég er að brjóta saman þvott þá leitar hún að öllum sokkunum og parar þá saman og meira að segja rúllar þeim upp sjálf. Rosa dugleg að hjálpa til við húsverkin.
Annað sem lýsir hugulsemi hennar er það að þegar við erum saman á hjólinu og ef ég er með hliðartöskuna mína á mér þá heldur hún alltaf í töskunni svo ég sé ekki með töskuna í fótunum á mér á meðan ég hjóla. Hún fann uppá þessu alveg sjálf þegar hún tók eftir því að ég var alltaf að ýta töskunni aftur og aftur aftur fyrir mig.
Ekki meira í bili, jú ég verð í leikskólanum hjá henni aftur á morgun. Spennandi...
Bless í bili
Fjóla
 
mánudagur, nóvember 10, 2003
  Hæ aftur.
Ég er búin að setja inn linka á uppáhaldsheimasíður Ástu Indíu. Mæli með þeim, sérstaklega með Stubbunum fyrir svona Salnýjur Kajur, en Disney er erfiðara og hentar örugglega frekar stórum strákum eins og Birki. Ég set myndir úr afmælinu í gær hér inn um leið og það er komið fullt batterí í myndavélina aftur.
Blessó
F.
 
  hæ hæ
Vonandi var gaman í afmælinu í gær hjá ömmu Ástu og vonandi fékkstu fullt af skemmtilegum pökkum. Við fórum í afmæli í gær og það var rosa gaman, við fengum súkkulaðiköku og pönnukökur, þið hefðuð átt að sjá staflann. VÁ! Melkorka vinkona mín býr hjá afmælisbarninu og átti heiðurinn á pönnukökustaflanum. Í afmælinu voru fullt af hollenskum krökkum, en þau voru 3 íslensk. Hin íslensku börnin hafa alla sína æfi búið í Hollandi og tala reiprennandi hollensku. Ásta Indía lét það nú ekki á sig fá og bara talaði hollensku líka og það líka við íslensku krakkana. Hollendingar eru þannig að þeir fara um leið og afmælið á að vera búið. Þannig að allir Hollendingar fóru kl. 5 og Íslendingarnir 3 gátu tekið gott fíflkast og hlupu útum allt og voru fyndin og hlógu ógurlegum gerfihlátri. Rosa stuð. Það eru nú fáir sem geta fíflast jafn mikið og íslenskir krakkar. Krakkarnir heita Gígja, sem varð 3 ára í gær og Dagur , sem er 2 1/2 árs. Þetta var mikið stuð og spurning um að hittast aftur fljótlega. Reyndar þá eru Gígja og Dagur saman á leikskóla, þannig að þau hittast daglega, en það er alltaf gaman að fá nýjan í hópinn.
Segjum þetta gott í bili.
Blessó
Fjóla
 
sunnudagur, nóvember 09, 2003
  Hæ hæ
Hún amma Ásta á afmæli í dag!!! Hún er 50 ára í dag. Til hamingju með afmælið amma kyss kyss.
Freyja frænka á líka afmæli í dag. Hún er 4 ára í dag. Til hamingju með afmælið Freyja.
Við komumst náttúrulega ekki í þessi afmæli en fáum þó sárabótaafmæli, því að Gígja sem er íslensk stelpa sem á heima í Amsterdam átti afmæli á föstudaginn og heldur uppá það í dag. En við heppin! Hún er 3 ára í dag og það verður örugglega rosalega gaman.

Annars vaknaði Ásta Indía með lag á heilanum í fyrradag eða ætli hana hafi dreymt það kannski. Kannski. Því það fyrsta sem hún sagði var "hvaða lag er þetta - la la la la la la la" og svo söng hún það. Mér fannst það svolítið merkilegt, við reyndar gátum ekki sagt henni hvaða lag þetta væri, en ég kannaðist samt eitthvað við það.

Til hamingju með afmælið afmælisbörn!

Bless í bili
Fjóla
 
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
 
Ég varð bara að segja ykkur að Ásta Indía og pabbinn eru að tala saman á hollensku. Þetta gengur alveg upp hjá þeim og þetta eru alveg samræður. Þau eru búin að tala um blómin hjá okkur, matinn og hvað Ásta Indía er sterk. Rosalegt.
Ásta Indía veit fátt skemmtilegra en að fara út að borða fyrir kvöldmatinn. Þá fer hún í hlaupafötin, þ.e. fötin sem hún er búin að ákveða að séu hlaupaföt. Og svo er bara farið út að hlaupa og ef maður hleypur ekki alveg eins hratt og hún eða slakar aðeins á þá er öskrað "HLAUPTU!!!!" Við vorum sko úti að hlaupa aðeins. Hún hleypur eins hratt og ég skokka rólega, ég get ekki gengið meðan hún hleypur og svo er bara þokkalegt úthald.
Góða nótt.
Fjóla
 
  Jæja
Seint skrifa sumir, en skrifa þó.
Helgin með afa og ömmu fór í það að versla jólagjafir, skoða tölvubúðir og prófa kontrabassa. Valdi var með 3 kontrabassa hérna heima. Við vorum nú ekkert alltof heppin með veður þessa helgina en létum það ekkert á okkur fá og þrömmuðum um bæinn. Reyndar var það yfirleitt þannig að þegar við vorum komin heim með pokana, þá vorum við ekkert alltof spennt fyrir því að fara aftur út og niðrí bæ til að fara út að borða. Þannig að við fórum voðalega lítið út að borða og eina skiptið sem við fórum út að borða, þá var það á indverskan stað í næstu götu. Við þurftum bara að labba í 2 mínútur í grenjandi rigningu og Ásta Indía var sú eina í regngalla, en hún gat hlíft afa sínum aðeins fyrir rigningunni með því að halda hettunni sinni yfir andlitinu hans á meðan hann hljóp með hana heim. Heppinn. Amman og afinn fóru með Ástu Indíu í leikskólann á mánudeginum og þeim leist nú vel á kennarann hennar og krakkana. Þetta er líka voðalega gott fólk, sem er mjög hrifið af Ástu Indíu. Svo var síðasta skiptingin í búðir og tölvubúðir. En það náðist góður árangur með þessari skiptingu. Nánast allar jólagjafir frá Bæjartúni komnar og við fengum vídeótæki!!! Ekkert smá gaman fyrir Ástu Indíu að rifja upp gömul kynni við vídeóspólurnar sínar og svo gátum við horft á íslenska Idols. Þau tóku upp þættina fyrir okkur. Rosa stuð. En þau fóru á þriðjudaginn aftur heim til Salnýjar Kaju. Við fórum með þeim á flugvöllinn til að hjálpa þeim með allan farangurinn. Þau voru reyndar líka með, fyrir utan sitt, einn kontrabassa sem Valdi keypti fyrir vin Þórunnar Völu frænku og rafmagnsgítarinn hans Halla frænda hans Valda pabba. Þannig að það þurfti allar þessar hendur.

Svona þegar maður er með gesti þá á maður það til að fara aðeins seinna að sofa þannig að við erum svolítið þreytt núna og eigum rosalega erfitt með að vakna á morgnana, en þetta er að koma, ég finn það.

Ég fór með Ástu Indíu í leikskólann í morgun og þá er þemað núna tölur og að telja. Kennararnir voru svo hissa að sú sem kann einna minnst í hollensku í bekknum kann að telja alveg upp í 17. Kemst lengst af öllum í bekknum! Hún kann að telja alveg jafn langt bæði í íslensku og hollensku. Hún kemst samt alveg lengra ef einhver hjálpar henni. Hún er svo gáfuð. Hún kemst yfirleitt upp í 20 bæði á hollensku og á íslensku, en það fer eitthvað í kerfi í kringum 16, þá fer hún að hoppa fram og tilbaka. 16 18 12 20 6 7 8 .... Ég held hún nenni bara ekki að halda sig við kerfið lengur. En alla vegna þá finnst þeim í skólanum hún alveg rosalega klár. Mont mont mont. Fyrir utan það að hún kann að skrifa nánast alla bókstafina og eftir að hún fékk talnapúsluspil frá ömmu Ástu og afa Sigurjóni þá þekkir hún líka alla tölustafina upp í 10. Og hananú!

Svo sá ég eitthvað föndur í skólanum og spurði Ástu indíu hvort hún hafi verið að föndra þetta. Já það gerði hún. Ég spurði hvað þetta væri og hún svarar: "Þetta er svona, þú veist, svona paddestoel". "Hvað er paddestoel?" spurði ég þá og hún svarar: "Svona sveppur"! Þetta voru svona rauðir sveppir með hvítum doppum sem krakkarnir voru búnir að föndra.

Jæja þá ætla ég að fara að skella inn einhverjum nýjum myndum.

Bless í bili
Fjóla 
Hæ hæ. Hér erum við að hugsa um að segja fréttir af okkur, en aðallega af Ástu Indíu, svo vinir okkar og fjölskylda á Íslandi og víðar geti fylgst með okkur í Hollandi.

ARCHIVES
08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 /


Powered by Blogger

Free Guestbook from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Free Photo Center from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Sendið Fjólu póst
Sendið Valda póst
Svona er veðrið í Amsterdam:
The WeatherPixie

Weblog Commenting by HaloScan.com