Ásta Indía Valdimarsdóttir
miðvikudagur, janúar 28, 2004
  Nú er Valdi pabbi kominn með blogg og þar af leiðandi kominn með link á sig héðan. Nú er bara eins gott að hann fari að skrifa eitthvað. En ég er alla vegna búin að gera síðuna hans rosalega flotta. Kíkið og þá neyðist hann kannski til þess að fara að skrifa eitthvað.
Blessó
Fjóla. 
  Jæja ekki entist snjórinn lengi.
Það byrjaði að rigna eftir að ég kom heim og það var orðið snjólaust á götum þegar ég sótti Ástu Indíu. Núna er sólskin og allur snjór farinn. Þetta var stutt gaman.
Blessó! 
  Hafið þið hjólað í snjókomu?
Hélt ekki.
Það snjóar í Amsterdam. Í fyrradag var vor og nú snjóar og það líka hlussusnjókornum. Ég hjólaði með Ástu Indíu í leikskólann, þá var sko ekki farið að snjóa, en við vorum frekar hvítar þegar við komum þangað. Þegar ég kom heim þá sást ekki framan á mér í hvaða litum ég var. Það var þykkt lag framan á mér. Hvaða Íslendingi á Íslandi dytti í hug að hjóla í svona veðri??? Það er reyndar ekki hálka úti enn. Ég fer samt á hjólinu á eftir að sækja hana, ég meina ekki er skárra að labba í svona mikilli snjókomu!!!
Bless í bili
Fjóla. 
mánudagur, janúar 26, 2004
  hæ hæ aftur
Mig langar til að óska Signýju til hamingju með áfangann, en um helgina þá útskrifaðist hún frá Tækniháskóla Íslands sem viðskiptafræðingur af vörustjórnunarsviði. Þetta er rosalega langt og flott heiti. Svo er nú mikið fleira að frétta af þeirri fjölskyldu, en hún Salný Kaja litla frænka verður stóra systir um það leyti sem hún sjálf verður 2ja ára í júní og svo ætla foreldrar hennar, sem sagt Signý og Sigurgeir, að gifta sig um páskana. Eða nánar tiltekið 10. apríl. Þannig að allt bendir til þess að við munum sjást á klakanum um páskana. Gaman gaman.
Ásta Indía biður að heilsa öllum.
Bless í bili,
Fjóla.
 
  Hæ hæ
Ég veit ég er rosalega léleg í þessu þessa dagana. En alla vegna þá er Ásta Indía búin að fara tvisvar í bekkinn sinn. Fyrst var ég með henni hálfan morguninn því hún var svo feimin, en í seinna skiptið fór ég strax og það var sko ekkert mál. Í bekknum hennar eru 4ra ára og 5 ára krakkar saman í hóp, þ.e. fyrsti og annar bekkur eru saman. Hún er með 3 kennara, en þeir eru ekki alltaf saman þrátt fyrir að 20 börn eru í bekknum. Ásta Indía þekkir eina stelpu í bekknum því hún var í leikskólanum hennar líka. Hún heitir Nermine og er voðalega góð stelpa. Þar að auki þá hafa hinar stelpurnar tekið henni rosalega vel og hlupu allar til hennar þegar hún kom í seinna skiptið. Ástu Indíu finnst voðalega fyndið að ein þeirra heitir Lina alveg eins og Lína langsokkur, en Lína heitir auðvitað Pippi í Hollandi. Þannig að það á enginn eftir að fatta þennan brandara hér. En Ásta Indía er strax orðin voðalega köld í nýja bekknum sínum og svara fullum hálsi fyrir sig og svarar spurningum kennarans fyrir framan bekkinn líka. Ég var ekkert smá stolt, hélt kannski að hún væri of feimin til að svara, en hún varð náttúrulega að vera jafn dugleg og hinir.
Ég var á fundi með einum kennara úr leikskólanum hennar til að gera upp þann tíma sem hún var hjá þeim. Hún hafði náttúrulega ekkert nema gott að segja um hana. Hún sagði að hún væri búin að vera ótrúlega fljót að ná hollenskunni og þetta er sko kona sem er mjög vön útlendingum. Hún sagði að hún væri mjög félagslynd og hjálpsöm - á það jafnvel til að koma krökkunum í sætin. Hún er dugleg að leika við alla og það eru aldrei vandamál í samskiptum. Og hún vill alltaf vera að dansa.
Eina sem er, er að hún fer í baklás þegar hún er skömmuð. Þá fer hún í fýlu, eins og hún gerir heima hjá sér líka. En hún þarf yfirleitt bara "time out" í 5 mínútur og þá er allt í lagi.
Þetta er nóg langloka í bili.
Blessó.
Fjóla.
 
þriðjudagur, janúar 20, 2004
  Komnar 4 nýjar myndir inní möppuna hennar Ástu Indíu, ég náði ekki að setja þær inn í gær. Eru ekki nýju litirnir fínir annars? Ég var búin að fá leið á hinum.
Bless í bili
Fjóla.
 
mánudagur, janúar 19, 2004
  Hæ hæ
Ég er greinilega ekki alveg komin í skriffílinginn, en ég ætla að segja ykkur frá gærdeginum. Þá var sko gott veður. Annars rignir bara og rignir hérna og enginn nennir neinu. En í gær vorum við mæðgur einar og fórum á leikvöll í skínandi sólskini. Við fórum í Oosterpark því þar er svo góður leikvöllur. Ásta Indía æfði sig í að róla, hún náði sko að fara mjög hátt alveg sjálf. Svo klifraði hún aðeins í klifrugrindinni. Mér finnst nú alltaf rosalega erfitt að leyfa henni að fara í hana því ég er svo lofthrædd, en hún er góður klifrari og fer mjög varlega, auk þess þá vil ég ekki ala upp í henni lofthræðslu, það er ekki nógu góð tilfinning. Alla vegna gaman á leikvellinum í góða veðrinu, það var meira að segja nánast hlýtt.

Svo lá leið okkar í tónlistarskólann, þar sem við hlustuðum á Gunnhildi vinkonu mína spila yfir eitt verkið sem hún mun spila á loka - mastersprófs tónleikunum sínum á föstudaginn. Þetta verk er ekki beinlínis í anda hörpuímyndarinnar þannig að Ástu Indíu fannst þetta voðalega sniðugt þar sem við horfðum á Gunnhildi slá með trommukjuðum á strengina og spila á helling af slagverki og syngja inní hörpuna. Þetta var nú eitthvað nýtt, og mjög skemmtilegt. En þegar Gunnhildur var búin að spila þá var komið að Ástu Indíu. Hún fékk litla hörpu og settist ofan á ruslatunnu, það var sko eini stóllinn sem passaði við hana og hörpuna, og hún spilaði. Þetta var annar hörputíminn hennar og gengur henni mjög vel þó ég segi sjálf frá. Þetta var rosalega gaman. Svo hittum við Valda pabba og hjóluðum saman heim í góða veðrinu. Hjóluðum meðfram Amstel því það er svo rómó í svona fallegu veðri. Himininn varð eldrauður svo í gærkvöldi - alveg geggjaður.

Ásta Indía ætlar að mæta í bekkinn sinn í fyrramálið og prófa að vera í honum einn morgun. Það verður spennandi að heyra hvernig það gengur. Annars var hún í málþroskaprófi í dag og hún flaug náttúrulega í gegnum það, gat svarað öllum spurningum og talar í heilum setningum. Kennararnir hennar voru mjög ánægðar með hana og sögðu hana vera sko alveg tilbúna fyrir skólann.

Segjum þetta gott í bili. Annars set ég myndir inn í Ástu Indíu möppuna frá gærdeginum. Ég læt ykkur svo vita hverrnig var í skólanum hjá henni.

Bless í bili
Fjóla. 
miðvikudagur, janúar 14, 2004
  Jæja margumtalaða Mjallhvítarhúsið er komið á netið... Í albúmi Ástu Indíu má sjá herlegheitin.
Annars er ekki mikið að frétta... hmmm... Ásta Indía er við það sama alltaf jafn gaman í leikskólanum. Ég er hætt í skólanum mínum og er að vinna í að sækja um vinnu á meðan atvinnutilboðum rignir yfir Valda. Hann er búin að fá tilboð um að spila í leikhúsi í fullu starfi, sem er nú eiginlega allt of mikið og svo er verið að bjóða honum til Spánar og Parísar. Gaman að vera Valdi þessa dagana. Svo eru útsölur útsalanna hérna núna - sko útsöluvörur eru á 50% aukaafslætti - algjört himnaríki. Ég reyni samt að fara varlega. En bara til að gefa ykkur hugmynd þá keypti ég boli á okkur mæðgur á 2,5 evrur (ca. 200 IKR) og keypti skyrtu á 7,5 evrur (ca. 700 IKR).

Jæja blessó
Fjóla.
 
mánudagur, janúar 12, 2004
  Komnar inn 6 nýjar myndir í jólamöppuna. Kíkið!
Annars beið Ástu Indíu risastór pakki frá okkur foreldrunum þegar við komum heim og í honum var hús dverganna 7, hennar Mjallhvítar og er mikið búið að leika sér með húsið og kassann líka. Það er rosa stuð að skríða inní kassann og vera þar.
Ég set inn mynd af húsinu við tækifæri, ég nenni ekki meiru tölvustússi í bili.
Blessó
Fjóla.
 
  Hæ hæ
og takk fyrir síðast allir! Við komum heil á húfi aftur heim til okkar á fimtudagskvöldið. Það var bara gott að koma heim aftur og getað byrjað reglusamt líferni aftur. Við erum komin á hjólin okkar aftur og farin að hrista af okkur jólaspikið. Ásta Indía, sem reyndar bætti engu spiki á sig um jólin, fór út með hjólið sitt í gær og henni fannst það svo gaman. Hún hrópaði allan tímann vúhúú og vííííí aftur og aftur. Við fórum á róló og hún rólaði mikið og hjólaði svo heim aftur vúhúandi og vííandi. Svo er hún komin aftur í skólann sinn og byrjar nú smá saman að fara í 4 ára bekkinn sinn, en fer svo full-time í hann eftir 12. febrúar.

Jæja, ég ætla nú ekki að fara að segja frá öllum jólunum, en skelli nokkrum myndum inní jólamöppuna þannig að þið sjáið stemninguna. En ég er alla vegna byrjuð að skrifa aftur, fylgist með...

Bless í bili.
Fjóla.
 
Hæ hæ. Hér erum við að hugsa um að segja fréttir af okkur, en aðallega af Ástu Indíu, svo vinir okkar og fjölskylda á Íslandi og víðar geti fylgst með okkur í Hollandi.

ARCHIVES
08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 /


Powered by Blogger

Free Guestbook from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Free Photo Center from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Sendið Fjólu póst
Sendið Valda póst
Svona er veðrið í Amsterdam:
The WeatherPixie

Weblog Commenting by HaloScan.com