Ásta Indía Valdimarsdóttir
laugardagur, febrúar 28, 2004
  Hæ hæ!!!
Pabbi Valdi Kolli á afmæli í dag! Hann er 27 ára gamall. Hann er reyndar farinn til Utrecht, því hann er á æfingu þar í dag og spilar á tónleikum þar í kvöld. Amma Ásta er í heimsókn hjá okkur núna, hún kom á fimmtudaginn og fer á þriðjudaginn. Við erum svo að hugsa um að fara til Utrecht á eftir til að hitta Valda þegar hann er búinn að æfa og jafnvel hlusta á tónleikana líka. Þeir eru reyndar kl. 9 í kvöld, en í kirkju þannig að við ættum að geta tekið Ástu Indíu með okkur ef hún er ekki orðin of þreytt. En þetta þýðir það að Valdi verður ekkert heima í dag til að taka á móti afmælisóskum. Þá er hægt að hringja á morgun heim til okkar eða þá í farsímann hans í dag. Ef einhverjir vilja nýta seinni kostinn þá er símanúmerið 0031 614 28 39 28.

Annars er bara allt fínt að frétta. Veðrið ætlar að haldast vetrarlegt aðeins lengur, það snjóar alltaf öðru hvoru þó snjórinn haldist aldrei, en svo kemur alltaf voðalega vorlegt veður inn á milli. En það er hægt nú orðið að fylgjast með veðrinu hjá okkur (reyndar miðað við Schiphol flugvöll) hérna á síðunni. Hér er komin mynd af veðurdís sem segir til um veður með klæðnaði, en hitastig og aðrar tölur eru undir henni.

Bless í bili,
Fjóla Dögg.
 
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
  Hæ hæ
Ásta Indía fór loksins í skólann á fimmtudaginn, reyndar bara eftir hádegi þar sem hún var enn svolítið slöpp um morguninn. Hún hafði nú bara nokkuð gott af því að fara aðeins út og kom bara hress til baka. Um kvöldið komu amma Ásta Kristín og amma Martha frænka. Skólinn var svo í fríi á föstudeginum, þannig að Ásta Indía gat eytt deginum með okkur. Í skólanum er gefið frí 1 föstudag í mánuði, það er eitthvað varðandi kennsluskyldu og svoleiðis. Reyndar er skólinn þar af leiðandi út júní. Alla vegna á föstudeginum röltum við um bæinn og ömmurnar reyndu að sleppa sér í verslunarleiðangrinum, það tókst nú ekkert voðalega vel. Þær komu með afmælispakka handa Ástu Indíu - Albertína ballerína bókin, stílabók, pennaveski, blýantar, leir, annað skrifdót og peysa. Rosalega mikið og það eru heilu ritgerðirnar komnar í stílabókina. Systurnar yfirgáfu okkur svo á laugardagseftirmiðdaginn eftir að hafa skannað búðirnar í götunni okkar líka. Við fylgdum þeim á lestarstöðina og komum frostnar heim. Það er óttalega kallt þessa dagana.

Helgin fór svo aðallega í inniveru tilað reyna að ná kvefinu úr okkur, það tókst ekki alveg, þrátt fyrir aðeins meiri hressleika.

Í gær var svo bolludagur og buðum við í bollukaffi. Við vorum 9 í kaffi. Ég bakaði vatnsdeigsbollur og kom út afgangsköku síðan úr afmæli Ástu Indíu. Finnur, Tóta, Gunnhildur og Melkorka sátu eftir og við pöntuðum pizzu saman. Þetta var góður bolludagur. Sprengidagur í dag og þar sem ekki er mikið um kjötát á þessu heimili þá verður örugglega gerð baunasúpa í kvöldmat.

Hafið það gott!
Blessó
Fjóla.
 
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
  Það eru komnar nýjar myndir!!!
Kíkið inná fjölskyldumöppuna og afmælismöppuna. Það eru myndir af Mjallhvítarkjólnum og svo sýnishorn af öðrum pökkum og svo mynd af Gulla. Því miður þá gleymdist að taka fleiri myndir á meðan Brandur, Gulli og Margrét voru hjá okkur í heimsókn.
Heilsan er að komast í lag og við Ásta Indía drifum okkur með hana meira að segja í skólann eftir hádegi í dag. Komumst svo að því að það er frí á morgun. Enn er svolítið kvef í okkur og erum við búnar að smita Valda líka, en við erum samt skárri.
Amma Ásta og Martha frænka sem er líka amma koma í kvöld til okkar, en stoppa stutt þar sem þær taka Berlínarlest á laugardaginn og heimsækja Aron Lúis og Katrínu. Aron Lúis stóri frændi varð 6 ára í gær. Til hamingju með afmælið dússi!!!!

Bless í bili,
Fjóla. 
þriðjudagur, febrúar 17, 2004
  Hæ hæ,
Brandur, Gulli og Margrét voru að fara frá okkur áðan. Þau komu í gær um klukkan 2 og þá var kaffi með afgangsafmælisköku og svo var sest við spilin. Sequence er víst aðalspilið í dag og var það örugglega spilað a.m.k. 10 sinnum meðan á þessari 20 klst heimsókn stóð. Við gengum aðeins út og fórum á storkaleikvöllin. Storkarnir voru ekki heima, en krakkarnir gátu æft sig aðeins í tækjunum þar. Við gátum ekki stoppað lengi þar sem Ásta Indía hafði ekkert úthald í útiveru sökum veikinda og þegar við vorum á leið út af leikvellinum þá voru allir 3 krakkarnir búnir að meiða sig eitthvað. Svo var haldið áfram að spila og svo var pizzuveisla. Morguninn fór í að spila og borða morgunmat og svo röltum við með þeim út á leigubílastopp og kvöddum þau þar. Það var voðalega gaman að fá þau í heimsókn og hefði verið gaman að hafa þau lengur. Ekki spillti fyrir að þau komu færandi hendi með seríós og afmælispakka. Þau gáfu Ástu Indíu Írafár diskinn og komu með pakka frá Söru, sem var playmo hjólakassi og kjóll og nærföt, og frá Signýju, Sigurgeiri og Salnýju Kaju, sem var sko hvorki meira né minna en Mjallhvítarkjóll á Ástu Indíu. Hún hefur ekki farið úr kjólnum síðan hún fékk hann í hendurnar nema til að fara út og að sofa. Þá er bara að reyna að ná úr sér kvefi fyrir næstu heimsókn.
Bless í bili,
Fjóla.
 
mánudagur, febrúar 16, 2004
  Hæ hæ
Afmælisveislan var í gær. Gunnhildur var búin að hjálpa mér alla helgina að undirbúa kræsingarnar. Gestirnir komu uppúr kl. 3 og komu allt í allt 23 gestir og þar af voru 8 börn. frá 9 mánaða og upp í 7 ára aldur. Hér var mikið stuð og mikið borðað og mikið leikið. Fyrstu gestirnir fóru að fara uppúr kl. 5 en vinir okkar foreldranna voru til hálf 9. Pakkarnir voru mjög skemmtilegir, hún fékk 2 bækur, stórt heimskort, 2 prinsessubarbídúkkur, eina barbí með sýningarhund (mér varð nú hugsað til Mörthu), barbíkjóla, handtösku með spennum, skuplu, hárbursta, armbandi og hring, húlahring og Hello Kitty skartgripaskrín. Fyrir var hún búin að fá ballerínubarbí og dansarabarbí, hoppukastala fyrir litlar dúkkur, buxur, calleidoscope, álfadrottningu, flugvél fyrir barbídúkkur og perlur til að gera hálsfesti. Vonandi er ég ekki að gleyma neinu.
Ásta Indía var búin að panta húsaköku og gerðum við sko húsaköku. Hún var svo flott að ég man varla eftir flottari afmælisköku, það voru þakskífur, froskahlaupgras, víngúmmísól og lakkrís blóm og tré. Við vorum ansi montnar af afrakstrinum, ég set sko inn myndir. Ég tók líka fullt af myndum í leikskólaafmælinu, en þær eru kannski allar ónýtar. Valdi er með einhver plön um björgunaraðgerðir og vonandi takast þær. Þær myndir voru mjög skemmtilegar. En ég set inn myndir frá gærdeginum.

Annars eigum við von á Brandi, Gulla og Margréti í dag. En Ástu Indíu var haldið heima í dag sökum hálsbólgu og mikillar horframleiðslu, þó enginn hiti.

Já, ég ætla að setja inn myndirnar.
Bless í bili
Fjóla.
 
föstudagur, febrúar 13, 2004
  Jæja, stóri dagurinn rann loksins upp við mikla gleði.
Við mæðgurnar fórum saman í leiksólann með nammipokana og kanilsnúðana. Þegar við komum þá fékk Ásta Indía að hjálpa til við að búa til kórónuna sína og fékk að sitja á Mínu mús stól, sem henni fannst rosalega flottur. Svo var hún bara í aðalhlutverki, fékk að sitja hjá kennaranum og allir sungu fyrir hana afmælissönginn, svo fengu krakkarnir kanilsnúða, sem fengu nú misjafnar móttökur. Kanilsnúðar eru greinilega mjög skandinavískir, því þetta fólk þekti þetta bara alls ekki. Kennararnir mundu eftir að hafa séð svona í IKEA og krökkunum fannst þetta mjög skrýtið, en flestum fannst þeir góðir. Svo var farið út og Ásta Indía mátti fyrst velja hjól og svo var hjólað um og hlaupið. Þegar leið á útiveruna þá fór Ásta Indía að fríka út. Hún valhoppaði hring eftir hring öskrandi: "Ik ben jaarig! Ik ben jaarig!" Alveg uppi á háa. Rosa stuð. Svo fengu allir krakkarnir nammipoka með sér heim.

Þegar við komum heim biðu hennar nokkrir pakkar og fór smá stund í að leika sér með dótið sem kom úr þeim. Svo fórum við út að hjóla og fundum skemmtilegan leikvöll og enduðum á McDonalds þar sem hún mátti velja sér veitingastað í tilefni dagsins.

Við þökkum allar kveðjur, símhringingar og pakka.

Kær kveðja
Fjóla og Ásta Indía. 
miðvikudagur, febrúar 11, 2004
 
Komnar nýjar myndir inn. Tvær af herberginu hennar Ástu Indíu inn á "heimilið okkar" og svo er ein rosa flott af Ástu Indíu inn á "Ásta Indía". Skoðið.
Fjóla.
 
  Hæ hæ.
Jæja, stórafmæli á morgun. Henni finnst þetta sko vera stórafmæli, hún heldur að hún eigi eftir að geta gert allt á morgun, hún heldur að hún eigi eftir að fylla betur útí fötin sín á morgun. Það gerist allt á morgun. Hún fór í peysu í morgun og henni fannst ermarnar aðeins of síðar og sagði: "Ég passa örugglega alveg í hana á morgun mamma". Við erum annars að undirbúa afmælisveislu og kveðjuveislu í leikskólanum á morgun. Það er venjan að allir krakkarnir fái lítinn nammipoka með sér heim úr skólanum, þannig að við erum búnar að kaupa nammi en finnum enga poka sem okkur langar til að kaupa. Svo er venjan að afmælisbarnið komi með eitthvað í nestistímann líka og er ég búin að fá pöntun uppá kanilsnúða. Ætli ég láti það nú ekki eftir henni þrátt fyrir að þeir séu frekar tímafrekir. Það er ekki eins og maður sé voðalega upptekinn.

Annars þá fórum við aftur í IKEA í fyrradag, en núna með Valda svo hann gæti borið dótið heim. Við keyptum litlar hillur fyrir herbergið hennar Ástu Indíu og einn stól. Við reynum að gera IKEA ferðirnar svolítið skemmtilegri þar sem þessi IKEA er alla vegna tvðfalt stærri en sú á Íslandi og maður skreppur ekkert þangað bara til þess að kaupa einn ramma. Alla vegna þá tókum við með nesti og bækur fyrir Ástu Indíu, fengum okkur stóra kerru og breiddum úr kápum og úlpum og svo var bara farið úr skóm og komið sér fyrir og notið ferðarinnar. Þegar við vorum búin að taka stólinn þá sat hún ofan á honum ofaní kerrunni, eins og á hásæti. Ekki leiðinlegt það. Svo á leiðinni að lestarstöðinni aftur þá vildi hún sko endilega halda á stólnum sjálf. Það gekk nú ágætlega, hún gat haft hann á höfðinu og labbað þannig og þá var hann í "þykjustinni regnhlíf", en þegar hún fór að þreytast þá bauðst ég til að halda á stólnum með henni. "Já! Við skulum halda á honum saman við stelpurnar. Pabbi! Sjáðu pabbi, við erum að halda á stólnum mínum saman við stelpurnar". Rosa stuð. Ég fæ reyndar aldrei að vera stelpa í hennar augum, bara Sara fær að vera stelpa með henni, þannig að ég spurði hana hvort ég væri stelpa og þá kom á hana skondið bros og hún hló og sagði: "bara þegar við erum saman við stelpurnar".

Eftir skóla í gær þá settum við Ásta Indía hilluna saman í sameiningu, þetta IKEA dót er svo einfalt að meira að segja 4ra ára barn getur sett það saman. Hún sá um skrúfurnar og fékk aðeins að banka á naglana þegar ég var búin að koma þeim fyrir. Hún var rosa smiður og ætlar sko að segja afa Sigurjóni að hún geti líka hamrað. Þetta hét reyndar einu sinni að gonka. Nú er orðið rosa fínt í herberginu hennar. Ég skal taka mynd og setja inn.

Vá ég ætla að hætta þessari langloku og kveð í bili.
Fjóla. 
mánudagur, febrúar 09, 2004
  Smá innskot: Sjáið þið alla litlu rauðu dílana? Eins og Holland er lítið land þá hafa Hollendingar greinilega verið með mikilmennskubrjálæði og þeir eiga nýlendur út um allt. Fyrir utan allar fyrrverandi nýlendur eins og Indónesíu, Suður Afríku og Súrinam. Ótrúlegir.
Kv.
Fjóla. 
  Hæ hæ
Þetta eru löndin sem ÁSta Indía hefur komið til. Ákvað að setja þetta inn því ég opna ekki bloggsíðu sem þessa þessa dagana án þess að þar sé svona landakort. Ásta Indía hefur komið til 1% af heiminum. Hún fæddist á Íslandi, býr í Hollandi og hefur komið til Danmerkur og Þýskalands. Hún hefur sko farið samt þrisvar til Þýskalands. Þetta er bara svona til skemmtunar gert.
Fjóla.



create your own visited country map
or write about it on the open travel guide

 
sunnudagur, febrúar 08, 2004
  Halló halló
Ég var að spá í að gefa ykkur smá innsýn inní matarvenjur Ástu Indíu. Hún er með matarsmekk á við mig þegar ég var 18 ára held ég. Reyndar er uppáhaldsmaturinn hennar pizza og væri pizza í matinn á hverjum degi ef hún mætti ráða. Sódavatn drekkur hún með bestu lyst, en ég náði ekki þeim þroska fyrr en 16 ára. Hrár lax og sushi er í miklu uppáhaldi hjá henni og þegar við gerum sushi þá rífumst við um endabitana á rúllunum sem við erum að skera niður. Og á meðan við erum að skera allt niður þá er hún endalaust að reyna að næla sér í hráa fiskinn. Þessum þroska náðum við Valdi saman fyrir tæpum 4 árum. Ólífur eru líka í miklu uppáhaldi hjá henni og gleðst hún mikið yfir því að bíta í ólífu sem hefur leynst í salatinu eða pastanu. Ég byrjaði að borða ólífur 18 ára held ég. Það sem hún neitar að setja inn fyrir varirnar eru sveppir, laukur og eggjahvíta. Þetta þrennt er of slepjulegt. Er þetta kannski bara matarsmekkur 4ra ára barna nútímans???
Það minnir mig á það - 4 dagar í 4ra ára afmæli!!! Þá verður haldin afmælis- og kveðjuveisla í leikskólanum og svo verður afmælispartí hér á Middenweg 17 á sunnudaginn kl.15 og eru allir velkomnir.
Sjáumst!
Fjóla.
 
föstudagur, febrúar 06, 2004
  Hæ hæ,
með smá aðstoð tölvusérfræðings fjölskyldunnar, Sigurgeirs, þá er komið á síðuna smá spjallkerfi. Undir hverju innleggi frá mér getið þið smellt á og komið líka með innlegg gaman gaman. Þið getið komið með fyrirspurnir eða bara tekið þátt í umræðunni. hmmm... Það er nú ekkert voðalega mikið að frétta annars. Ásta Indía var í skólanum í morgun og fannst voðalega gaman. Reyndar var ég smá stressuð í morgun þegar ég kom með hana. Ég mátti ekki fara strax og stelpurnar í bekknum ætluðu bókstaflega að éta hana og hún meikaði það sko alls ekki. Svo voru svo mikil læti. Það er sko frítími til kl. 9 en eftir það þá er meiri regla á hlutunum hjá þeim, ég get ekki að því gert, ég er voðalega hrædd um það séu allt of mörg börn í bekknum. Þau eru 20 og 2 kennarar. Ég þarf að athuga hvort þetta sé svona alls staðar. Ég læt kennarana í fjölskyldunni tékka á þessu þegar þær koma.
Læt þetta duga í bili.
Blessó
Fjóla.
 
miðvikudagur, febrúar 04, 2004
  mont mont mont
Dugnaðinum linnir ekki hjá stelpunni. Eftir skóla þá neitaði hún að setjast á hjólið og heimtaði að fá að hlaupa heim á meðan ég hjólaði og það gerðum við nema yfir götur og svoleiðis. Hún hljóp nánast alla leiðina heim. Svo eftir hádegismat þá fórum við í IKEA með Gunnhildi og tókum metró fá stað sem er aðeins lengra frá okkur en skólinn hennar. En þar sem ég er ekki svo þróaður hjólari að ég geti hjólað með barn og þungan poka þá fékk ég Ástu Indíu til að labba með mér heim svo ég gæti geymt pokann í stólnum hennar. Þetta er nú hátt í hálftíma göngutúr og það var bara ekkert mál. Hún kvartaði ekkert og kvartaði ekki einu sinni undan stiganum þegar við komum heim, sem hún gerir sko oft eftir minni áreynslu. Svo líka gekk hún glöð frá útifötunum sínum. Þannig að hún fær verðlaun. Fyrst fáum við okkur jógúrt og svo fáum við ballerínukex í desert sem við keyptum í IKEA (það fæst sko bara þar). Við erum svo heppin með eintakið okkar.
Bless í bili,
Fjóla.
 
  Hæ hæ
Niðurtalning í 4ra ára afmæli er hafin. 8 dagar til stefnu. Spennan magnast. Við höldum afmælisveislu og kveðjuveislu í leikskólanum á afmælisdaginn, miklar spekúleringar eru í gangi varðandi hvað við eigum að taka með okkur til að bjóða uppá. Ég fæ að vera með og tek myndir af herlegheitunum. Gaman gaman.

Kennarinn í bekknum hennar Ástu Indíu er voðalega ánægð með hana snúllu. Segir að hún taki strax mikinn þátt í starfinu og er voðalega góð í höndunum. Góð með skærin og að lita og teikna og svoleiðis.

Svo er hún Ásta Indía um það bil að byrja að flauta. Hún er alltaf að reyna og eins og er þá heyrist mjög lágt flaut, en af og til kemur rosalega hátt og skýrt flaut.

Annars eigum við von á rosa mörgum heimsóknum eftir afmælið hennar Ástu Indíu. Á mánudeginum eftir afmælið koma Brandur, Gulli og Margrét, á fimtudeginum eða laugardeginum þar á eftir koma amma Ásta Kristín og amma Martha frænka, þær ætla reyndar líka til Osnabruck (gamla heimabæ ömmu Kristínar og afa Sverris) og til Berlínar að heimsækja Aron Lúis og Katrínu. Svo um það leyti sem þær fara aftur til Íslands þá koma amma Ásta og afi Sigurjón. Þau ná afmæli Valda pabba 28. febrúar og fara svo heim 29. febrúuar eða 1. mars. En einmitt þá fara Valdi og Ásta Indía í vorannarfrí í viku og við getum þá hvílt okkur eftir allar heimsóknirnar. Þetta verður sko stuðmánuður 2 afmæli og 3 heimsóknir. Reyndar á Aron Lúis líka afmæli í febrúar (18.), en við missum víst af því.

Jæja, ekki meir í bili.
Blessó!
Fjóla.
 
sunnudagur, febrúar 01, 2004
  Hæ hæ
Ég á svo afskaplega duglega stelpu að þið bara eigið ekki eftir að trúa því. Hún Ásta Indía er farin að hjálpa til við að taka úr uppþvottavélinni og að setja í hana aftur, hún er náttúrulega löngu farin að setja hana í gang. En hún gengur núna alveg frá hnífapörunum, hún nær náttúrulega ekki hærra. Hún raðar svo í uppþvottavélina og vandar sig mjög mikið við það. Raðar stóru diskunum saman og litlu saman o.s.frv. Svo nær hún i þvottaefnið og hellir því í, maður hefur nú smá yfirsýn með því, en svo stilli ég á rétt prógram og hún ýtir á takkann! Voila! Svo var hún áðan að þvo rúðurnar fyrir mig, ég á reyndar eftir að taka efri partinn af rúðunum, en neðri parturinn er rosalega fínn. Fyrir utan þetta þá parar hún alla sokkana sína saman núna eftir að búið er að þvo þá og rúllar þeim saman líka. Hún er svoooo dugleg.

Annars eru 2 nýjar myndir. Ein er í Ástu Indíu albúminu og önnur í heimilið okkar. Kíkið endilega.

Bless í bili.
Fjóla.
 
Hæ hæ. Hér erum við að hugsa um að segja fréttir af okkur, en aðallega af Ástu Indíu, svo vinir okkar og fjölskylda á Íslandi og víðar geti fylgst með okkur í Hollandi.

ARCHIVES
08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 /


Powered by Blogger

Free Guestbook from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Free Photo Center from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Sendið Fjólu póst
Sendið Valda póst
Svona er veðrið í Amsterdam:
The WeatherPixie

Weblog Commenting by HaloScan.com