Ásta Indía Valdimarsdóttir
Hæ, gleymdi einu.
Klukkunni var breytt í nótt þannig að núna erum við 2 klst. á undan Íslandi.
Blessó,
Fjóla.
Hæ hæ,
Ásta Indía er svo mikið tölvuséní. Ég sýndi henni einu sinni hvernig ætti að skipta um mynd í desktop, þ.e. myndin sem er alltaf á skjánum á tölvunni, og hún bara fer og breytir ef við skiptum okkur eitthvað af þessu. Hún vill alltaf hafa mynd sem hún tók sjálf um jólin, og það er mynd af hundinum hennar Helenu Sólar, frænku okkar á Húsavík. Þetta er sem sagt hundabangsi, bleikur og hvítur, nema hvað myndin er tekin svo nálægt að maður sér varla hvað þetta er. Ég set myndina hérna inn og þá getið ÞIÐ niðurhalað myndinni og notað hana sem desktopinn ykkar.
Annars er það þessi keppni sem var í gær, hmmm... ætli ég megi segja frá... ok ég segi. Bandið lenti í 3. sæti, ok nú hugsa allir vá frábært, gott hjá þeim... nema hvað, það voru bara þrjú bönd að keppa.
Bless í bili,
Fjóla.
Hæ hæ
Ég var að setja inn 2 myndir, þær eru í nýja myndaalbúminu í Ástu Indíu möppunni. Annars er það að frétta að Valdi er að fara í einhverja keppni í Rotterdam á morgun, það verður spennandi að fylgjast með því hvernig það gengur. Hann er að spila með einhverju bandi þar. Annars veit ég ekki neitt, það væri nær að hann bloggaði eitthvað. Hér er annars bara allt við það sama. Veðrið er fallegt, en enn er ansi svalt, samt förum við stundum út á leikvöll og meðan maður nær að sitja í sólinni þá er bara fínt að vera úti og ég er ekki frá því að maður sé aðeins farinn að taka lit í andlitið.
jæja, ég segi ekki meir í bili, læt ykkur vita um niðurstöður keppninnar.
Bless í bili,
Fjóla.
Hæ hæ.
Það var rosalegt stormveður alla helgina þannig að við héldum okkur að mestu innandyra. Valdi þurfti reyndar að fara á fullt af æfingum, en ferðaðist um á tramma þar sem nánast ómögulegt var að hjóla í rokinu. Á föstudaginn þá héldum við smá partí. Við höfum aldrei haldið partí hérna hjá okkur fyrir fleiri en 6 manns þannig að það var kominn tími til. Ásta Indía var með í undirbúningi og skreytti húsið með myndum og heimtaði að fara í partíföt. Við ákváðum að leyfa henni að vera aðeins með þar sem allar barnapíurnar okkar voru að koma í partí. Hún skemmti sér rosalega vel og sýndi öllum sem komu herbergið sitt og lét alla leika aðeins í barbí við sig. Sumum strákanna fannst það reyndar svolítið erfitt. Hún náði svo að taka nokkur dansspor við Tótu og fékk mjólk í glas og skemmti sér mjög vel þar til hún var orðin of þreytt og heimtaði að fara í háttinn um kl. 11. Daginn eftir fór Valdi snemma þunnur á æfingu og ég og Ásta Indía vorum heima. Ég var svo þreytt og morkin og það var svo rosalega vont veður að við tjilluðum bara heima og púsluðum og horfðum á barnatíma milli þess sem að ég sofnaði í tíma og ótíma. Sunnudagurinn var einnig hvass, þannig að það var annar innipúkadagur hjá okkur mæðgum.
Eins og komið hefur fram í mogganum þá dó drottningamóðirin í Hollandi í gær, en hún var orðin 94 ára gömul og átti sama afmælisdag og langamma Fjóla, 30. apríl. Sá dagur er alltaf haldinn mjög hátíðlegur þrátt fyrir að búið er að skipta um drottningu. 30. apríl heitir Drottningardagur og er haldinn áfram hátíðlegur því að Beatrix drottning á afmæli í janúar og þá er svo vont veður.
Þetta verður látið duga í bili, litla prinsessan mín þarf að fara aftur í skólann núna.
Bless í bili,
Fjóla.
Hæ hæ.
Já, ég er búin að ákveða að skipta um myndaalbúm, nei ég hef þau náttúrulega bæði, sniðug Fjóla. Alla vegna í gamla myndaalbúminu mega bara vera 50 myndir, en í þessu nýja þá mega vera yfir 200, 250 minnir mig, þannig að ég var farin að þurfa að henda út myndum svo ég gæti sett inn nýjar, alveg óþolandi. Á næstu dögum þá ætla ég að föndra við þetta. Reyndar erum við alveg hætt að nenna að taka myndir, en það eru samt komnar einhverjar nýjar.
Jamm. Í gær var þessi líka sól og blíða og bara hlýtt. Við Ásta Indía fórum í bakarí og keyptum nesti og kaffi og fengum okkur göngutúr í Oosterpark og það bara á jökkunum, en ekki í úlpum. Á leikvellinum í Oosterpark var fullt af krökkum með foreldrum sínum og sat ég í sólinni á meðan hún lék sér í 3 tíma. Það er ekki laust við að það sé aðeins búið að skerpa á freknunum. Alla vegna í sumar og í haust þegar við vorum mikið í Oosterparkk að leika þá átti Ásta Indía voðalega erfitt með að finna sér leikfélaga og eiginlega fann bara einhverja til að elta, og gekk á eftir þeim eins og skuggi. Eða þá að hún fann einhverja nógu unga og vitlausa, sem að var alveg sama þótt hún gæti ekki talað hollensku. En núna, núna er sko allt annað mál. Hún sér eitthvað takmark og fer og nær sér í það og vefur stelpunum um fingurgóma sér, og það á hollensku. Þetta er allt annað líf, henni líður miklu betur núna á þessum leikvöllum.
Reyndar þá lék hún sér nú ekki allan tímann eins og hún væri 4ra ára, heldur sat hún einu sinni í sandinum og hellti sandi yfir höfuðið á sér, ekki mjög ánægjulegt, og var hún heldur ekki glöð með það hvað ég þurfti að grafla mikið í hausnum á henni til að losna við allan sandinn.
Svo held ég að hún sé á rifrilda stigi núna, hún er eins og versta gelgja og bara getur alls ekki verið sammála mér eða gert það sem ég bið hana um. Ef ég bið hana um að gera eitthvað, þá segir hún nei, ef ég segi að hún megi ekki gera eitthvað, þá segir hún víst, og ef ég bið hana um að koma, þá segir hún á eftir. Svona var húna alla vegna í gær og hún var að gera mig vitlausa, en vonandi verður hún skemmtilegri í dag.
Jæja brúðkaup eftir 23 daga, þannig að við sjáum fljótlega liðið sem er á Íslandi. Hafið það gott.
Blessó,
Fjóla.
Ég ætla að prófa nýtt myndaalbúm, það er svo leiðinlegt hvað það komast fáar myndir inní þetta sem ég er að nota. Ég set inn einn link sem heitir "Myndir" og endilega kíkið á þetta og látið mig vita hvort virkar betur.
Takk
Fjóla.
Hæ hó.
Ég er að fara í húsmæðraorlof á morgun og fram á sunnudag. Ferðinni er heitið til Berlínar og stefnan tekin á villt systradjamm. Aron Lúis er með pabba sínum í ferðalagi og þau feðginin hér á bæ ætla að eiga góðar stundir saman.
Annars þá bönkuðu uppá hjá okkur á föstudaginn þau Jens og Jóna, en Jens er æskuvinur Valda Kolla. Þau voru þá búin að koma sér fyrir á hóteli í bænum og ætluðu að vera hér fram á þriðjudag, en þau fóru einmitt í gær. Þetta kom alveg rosalega á óvart og var mjög gaman að fá þau í heimsókn. Þau voru hér hjá okkur fram á nótt á föstudaginn, en á laugardaginn þá fórum við til Haag í afmæli þannig að við hittum þau ekki mikið þann daginn. Okkur gengur alltaf svo illa að fara til Haag, þannig að við komum klukkustund of seint í afmælið, við höldum alltaf að við séum fljótari á leiðinni en við erum í rauninni. En afmælisbarnið var hann Árni Dagur Andrésar- og Sigguson og hann varð tveggja ára. Það var mikið fjör í afmælinu, við hittum aftur íslensku krakkana sem voru í afmæli Ástu Indíu og fleiri meira að segja. Skemmtilegast fyrir Ástu Indíu samt var örugglega þegar Þórdís stóra systir Árna Dags fór upp á loft með stóru stelpurnar þær Ástu Indíu og Gígju og naglalakkaði þær.
Nú sunnudagurinn fór í kaffihús og bæjarrölt með Jens og Jónu og enduðum við svo á tapasbar í kvöldmat og fórum svo öll heim til okkar í Ben and Jerry´s ís. Daginn eftir byrjaði alvaran aftur, vetrarfrí búið og Valdi og Ásta Indía þurftu að mæta aftur í skólann. Það var nú bara tilhlökkun í stelpunni með það. Hjónin Jens og Jóna gistu svo hjá okkur síðustu nóttina þeirra í Amsterdam þar sem eitthvað klikkaði hjá þeim með að bóka hótel síðustu nóttina. Píndum við þau svo á fætur snemma svo þau gætu keypt rauðvín og osta fyrir heimför.
Jæja, annars er bara stuð í liðinu og Ásta Indía er alveg tilbúin til að sleppa mér til Berlínar á morgun, en sérstaklega samt þar sem Finnur og Tóta ætla að sækja hana úr skólanum á morgun og passa hana þangað til Valdi er búinn í skólanum.
Jæja, góða helgi.
Fjóla.
Hæ hæ,
ætli það sé ekki kominn tími á smá update. Amma Ásta var í heimsókn hjá okkur og eru þá ekki fleiri heimsóknir fyrirhugaðar í bili. Amma Ásta kom á fimmtudaginn og fór á þriðjudaginn. Amma kom færandi hendi eins og vanalega og smyglaði hinum ýmsum góðgætum í bassakassanum hans Valda, sem hún kom með. Hún birgði okkur upp af seríósi, kom með fiskibollur og kökur frá langömmu Guðnýju. Svo kláraði hún hérna að ganga frá bútasaumsteppi handa Ástu Indíu. Það fer ekkert smá vel í fína herberginu hennar Ástu Indíu.
Ásta Indía er þessa dagana að uppgötva betur og betur hvernig það virkar að stafa og ef maður fer í gegnum orð og hljóðin í orðinu þá stafar hún það. Einnig þá segir hún t.d. "rusl, það er r í rusl". Svo er hún líka að byrja að skilja hvernig samsettar tölur líta út, en stundum ruglar hún röðinni. T.d. ef maður spyr hana hvernig maður skrifar 12 þá segir hún einn og tveir eða tveir og einn og skrifar það ýmist 12 eða 21.
Svo er hún á rosalegu spurningaskeiði núna. Hún hættir ekki að spyrja spurninga og hún ætlast sko til að fá svar við öllu og nánari útskýringar. Fylgja líka alltaf nokkur af hverju? á eftir hverri spurningu. Sem dæmi má nefna að við vorum í tramma um daginn og þá heyrðist smá öskur (táningaöskur) og Ásta Indía spurði: hver var að öskra? - einhver stelpa (mamman) hvar er hún? (ÁI) hún er farin (M) hvert fór hún? (ÁI) ég veit það ekki (M) af hverju var hún að öskra? (ÁI) hún var bara að grínast held ég (M) grínast, af hverju? (ÁI) kannski finnst henni það fyndið (M) af hverju? (ÁI) ég veit það ekki og hættu nú (M) og þá get ég ekki meir.
Verst finnst mér þó að í þessu spurningaflóði þá koma oft spurningar sem beinast að öryggisatriðum, eins og lásum, öryggisvörðum og löggum. Mér finnst erfitt að upplýsa saklausa 4ra ára stelpu um það hvað það er algengt að fólk steli eða er vont við hvort annað. Allir þessir öryggisverðir eru til þess að fólkið hagi sér vel og allir þessir lásar svo að enginn geti stolið. Hún spyr gjarnan orðið: af hverju er löggan hérna? er einhver óþekkur?
Núna er frí í skólunum hérna, hér er viku annarfrí í skólum, en ekki bara 2 dagar eins og heima. Þannig að við erum nú aðallega í því að "tjilla" eftir allan hasarinn seinustu vikurnar.
Núna eru rúmlega 5 vikur í brúðkaupið þannig að við sjáumst bráðum.
Já svo erum við komin með vefmyndavél í gagnið, en þar sem við erum makka fólk þá getum við ekki notað hana á msn messenger, bara á yahoo messenger. Þannig að allir eiga núna að niðurhala yahoo messenger svo þið getið séð okkur, það er reyndar ekki enn hægt að heyra í okkur, en það á nú vonandi eftir að breytast. Við erum með yahoo adressuna fjoladogg@yahoo.com á yahoo messengernum. Sjáumst!
Blessó
Fjóla.