Ásta Indía Valdimarsdóttir
Hæ hæ,
sumardagurinn fyrsti hér í Hollandi var sumarlegur og fínn. Hér er náttúrulega ekki haldið uppá þennan dag en eftir skóla þá fórum við Ásta Indía saman í dótabúð því við vorum búin að lofa henni sumargjöf í tilefni dagsins og það átti að vera dúkkustóll á hjólið hennar. Við fundum stól til að setja á stýrið og með honum fylgdi meira að segja hjálmur fyrir dúkkuna. Nú okkur var ekki til setunnar boðið heldur drifum okkur út að hjóla. Ásta Indía var ansi stressuð því síðast þegar hún fór á hjólið þá prófaði Valdi að taka hjálpardekkin af og hún datt náttúrulega. Hann setti hjálpardekkin á aftur, en skekkti þau og eftir það hefur hún ekki þorað á hjólið vegna hræðslu um að detta. Alla vegna þá var mjög spennandi að fara með dúkkuna út að hjóla, en þetta var mjög stressandi og átti ég að halda í hjólið allan tímann. Til að byrja með þá fórum við niður götu þar sem ég hélt í hjól með hjálpardekkjum, með stressaða stelpu sem æpti í hvert sinn sem hjólið datt á annað hjálpardekkið. Um stund þá ætlaði hún bara af hjólinu og labba með það bara, en ég tók það ekki í mál og eftir smá hótanir þá var hún komin á hjólið hálf vælandi. Svo var hjólað smám saman þá tókst mér að losa haldið um hjólið og eftir smá stund þá var hún farin að hjóla eins og ekkert væri. Hún gat hjólað hratt og hjólaði hringi í kringum ljósastaura og taldi kóngulóarvefina á brúnum sem við fórum yfir. Rosa dugleg. Núna förum við nánast daglega út að hjóla til að æfa hana.
Á föstudaginn kom hún svo með mæðradagsgjöf úr skólanum. Þetta var lítill bleikur pakki með hjartamerkimiða sem á stóð til mömmu frá Ástu Indíu, á hollensku þó. og inní var askja sem hún hefði skreytt og ofaní öskjunni var lítil Nivea kremdós og í botninum stendur mamma, ég elska þig. Rosalega sætt.
Nú, í dag þá hófst 2 vikna frí í skólanum hennar Ástu Indíu og í næstu viku verður líka frí í Valda skóla. Næsta föstudag verður Drottningardagur hér í Hollandi, en Juliana drottningarmóðirin hérna átti þá afmæli, en hún dó í vetur. Drottningarmóðirin í minni fjölskyldu á líka afmæli þann dag, hún langamma Fjóla og amma Ásta Kristín á afmæli daginn eftir. Mikið um að vera. Helgina þar á eftir þá verður Valdi pabbi í París og amma Ásta Kristín og afi Sverrir í Brussel. Þá er bara stóra spurningin eigum við Ásta Indía að fara til Parísar eða Brussel eða eigum við bara að tjilla í Amsterdam???
Annars voru amman og afinn í Hæðarseli að selja húsið sitt í gærkvöldi. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.
Bless í bili,
Fjóla.
Gleðilegt sumar!
Fjóla, Valdi og Ásta Indía.
Hæ hæ,
Ásta Indía er búin að uppgötva stærðfræðina! Í 3 1/2 árs skoðuninni þá var það eina sem hún gat ekki verkefnið þar sem hún átti að benda á hvar væru fimm boltar og á blaðinu voru myndir af 5 boltum, 3 boltum, 4 og 2 eða eitthvað svoleiðis. Hún var sem sagt ekki kominn með þroskann fyrir þessu og benti bara á eitthvað, en núna er stærðfræði þroskinn kominn. Þetta er búið að vera að þróast síðustu mánuði og undanfarið þá hefur hún verið að æfa sig í að gera einföld plúsdæmi, eiginlega bara tala minni en 10 plús 1 eða 2. En í gær kom svolítið gott dæmi. Hún var að tala um það að allir í bekknum ættu systkini nema hún. Einn átti systur, annar bróður o.sv.frv. Þannig að ég spurði hana hvort hún vissi hvað Nermine ætti margar systur (Nermine er vionkona hennar), en hún mundi það bara ekki. Hún á nefnilega 3 systur og allt í allt eru þær 4 systur, 4 stelpur í einni fjölskyldu. Þetta fannst minni náttúrulega voðalega merkilegt og sagði þá: "Ef að mamma þeirra er með þeim, þá eru þær 5 og ef pabbi þeirra er með þeim þá eru þau 6. VÁ!!! Þá eiga þau 6 rúm!" M: "En mamman og pabbinn eiga örugglega eitt rúm saman." ÁI: "Já, þau eiga örugglega svona rúm eins og þið eigið." M: "Já, en hvað eiga þau þá mörg rúm?" ÁI: án nokkurrar umhugsunar "5". Mér finnst þetta voðalega flott hjá henni.
Svo er hún byrjuð að reyna að gera slaufu. Hún getur tekið tvær lykkjur og bundið þær saman þannig að þær myndi slaufu, en takmarkið er náttúrulega að gera slaufu eins og mamma gerir. Það er nú alveg að koma, hún á bara eftir að fatta endann á slaufugerðinni. Hún verður sko farin að reima skóna sína sjálf áður en hún byrjar í 6 ára bekk.
Nóg af monti í bili,
Fjóla.
Jæja, er komin með myndirnar allar á sinn stað aftur, nema hvað að tölvan vill hvorki setja inn myndina af litlu frænkunni, né hleypa trylltum dansi Ástu og Sigurjóns inn á veraldarvefinn. Ég reyni aftur síðar samt. Það bættust fleiri myndir í hópinn, allt frá brúðkaupinu þó. Kjóllinn, sem amma Ásta saumaði sést núna betur.
Nema hvað, við erum farnar að fara meira út núna. Fórum í Oosterpark í gær og Valdi kom með. Við fórum í fótbolta og svo fór Ásta Indía að leika við krakka. Ásta Indía var bara nokkuð góð í boltanum, en eitthvað voru hreyfingarnar hennar danslegri en hjá litla stráknum sem var að æfa sig við hliðina á okkur. Einnig mátti greina Íþróttaálfseinkenni (úr Latabæ) hjá henni. Veðrið var rosalega gott, sól og blíða og allt að 20 stiga hiti, en næstu daga fer kólnandi hér, því miður.
Já, Ásta Indía er loksins byrjuð á páskaegginu sínu, hún var of slöpp í maganum til að geta fengið sér lítinn bita af því. En málsháttarnir okkar eru eftirfarandi:
Ásta Indía: Spyr sá sem ekki veit - þetta passar mjög vel - endalaust spurningaflóðið frá henni gerir mann stundum alveg ....
Fjóla Dögg: Flestallt hefur fyrst verið lítið - veit ekki alveg hvað er verið að segja mér hér.
Valdi Kolli: gleymdi málshættinum sínum á Íslandi og man hann ekki, en ætlar að reyna að muna. Ef hann finnst í Bæjartúni þá væri ég til í að heyra hann.
Með góða veðrinu komu náttúrulega moskítóflugurnar. Við erum komin með net fyrir hjónarúmið, en það á eftir að skrúfa í vegginn svo við getum klárað að setja það upp og svo vantar eitthvað yfir Ástu Indíu rúm, en Gunnhildur ætlar að lána okkur eitt, hún á svo mörg flugnanet eftir að hafa verið svo oft í Víetnam. En þessar fáu flugur sem eru komnar á kreik eru náttúrulega búnar að finna okkur og ég og Ásta Indía erum komnar með sitthvort bitið og ef Valdi hefði sofið heima hjá sér í nótt þá væri hann kannski líka kominn með bit. Hann var sko í Rotterdam í nótt og kom eldsnemma í morgun heim að sofa.
Verkefni dagsins verður að festa upp flugnanet yfir öllum rúmum.
Bless í bili.
Fjóla.
Halló,
myndirnar frá brúðkaupinu eru komnar inn ásamt nokkrum öðrum og þar af ein af litlu frænkunni okkar sætu sem fæddist 3. apríl þeim Höllu og Ása. Myndinni var samt stolið úr pósti sem ég fékk frá Mörthu. Ásta Indía er orðin hressari, hún hefur ekkert fengið illt í magann í dag og hver veit nema að við förum að koma okkur út í sólina fljótlega.
Blessó,
Fjóla.
Hæ hæ,
við erum komin aftur til Hollands eftir viðburðaríka Íslandsferð. Ásta Indía var voðalega mikið í pössun meðan á þessari dvöl stóð, var 2 nætur í Hæðarseli hjá ömmu Kristínu og afa Sverri, aðra nótt í pössun hjá Halla frænda og svo svaf hún eina nótt uppi hjá ömmu Ástu og afa Sigurjóni og sofnaði aðra nótt hjá þeim. Nú svo fór hún tvisvar heim með Birki frænda og lék við hann og svo var hún einn dag hjá Freyju frænku í rosa leik með Freyju og svo Andra Frey frænda sínum. Ég var að reyna að spyrja hana að því hvað hafi staðið uppúr í ferðinni, en það var bara allt rosalega skemmtilegt. Þegar ég gekk á hana með þetta þá fannst henni rosalega skemmtilegt þegar Signý opnaði pakkann frá henni. Ásta Indía hafði nefnilega málað sérstaklega mynd fyrir brúðhjónin í skólanum sínum og var henni pakkað voðalega fínt inn.
Já, Ásta Indía fékk að taka smá þátt í giftingunni ásamt hinum systkinabörnum brúðhjónanna og voru þetta 5 stelpur, og þar af dóttir brúðhjónanna og einn strákur. Stelpurnar voru allar í eins kjólum og Gulli var í fínum jakkafötum. Þau gengu inn rétt á undan Signýju og Sigurjóni ásamt mér og Söru sem leiddu þau rétta leið. Ásta Indía fer náttúrulega ekki oft í kirkju, eigandi svona mikla heiðingja sem foreldra, þannig að henni fannst þetta allt voðalega merkilegt og fylgdist mjög vel með. Fyrsta athugasemdin var á altaristöfluna, en giftingin fór fram í Kópavogskirkju. Altaristaflan er svona stytta eða mynd af Jesú (býst ég við) að ganga í gegnum vegginn. Ásta Indía spyr þá: "mamma, hvað er þetta?" bendir á umrædda mynd, mamman: "Þetta er listaverk" og eftir nánari umhugsun: "þetta er Jesús". ÁI: "óóó, eða kannski er þetta maðurinn sem á heima þarna uppi" og bendir uppí loftið. M: "Guð?" ÁI: "Já, þetta er örugglega guð". Stuttu seinna pikkar hún í mig og segir: "Mamma, hann sagði Jesús, af hverju sagði hann Jesús?" Mamman vissi nú ekki alveg hvernig hún ætti að svara þessu á stuttan hátt og það án þess að trufla athöfnina of mikið og svaraði pent: "Maður talar um Jesú þegar maður er í kirkju". Aftur seinna var pikkað í mig. ÁI: "Mamma, hann sagði drottning guð, af hverju sagði hann drottning guð?" M: "Hann sagði Drottinn Guð, ekki drottning guð." ÁI: "Af hverju sagði hann þá Drottinn Guð?" M: "Af því að hann er oft kallaður Drottinn Guð". En maður verður greinilega að fara að byrja einhverja trúarfræðslu á næstunni.
Annars þá fékk hún Ásta Indía hita síðasta daginn á Íslandi því það má náttúrulega ekki sleppa því að verða veik á Íslandi. Hún fékk magapest og smá hita og fór þannig í flug, en er nú öll að hressast núna. Hún fær reyndar ennþá verkjaköst í magann og þarf að hlaupa á klósettið skyndilega. Þannig að hún hefur ekki farið í skólann ennþá og fer líklegast ekki fyrr en á mánudaginn í skólann.
Ég ætla að setja inn nokkrar myndir úr Íslandsferðinni.
Hafið það gott,
Fjóla.