Ásta Indía Valdimarsdóttir
Já, ég var að panta flug. Ég og Ásta Indía komum á þriðjudaginn eftir viku heim til Íslands.
Sjáumst eftir viku!
Fjóla.
Jæja, er ekki kominn tími til að ég láti heyra aðeins í mér???
Allt hefur gengið sinn vanagang, svona nokkurn veginn. Ásta Indía var í fríi í 2 vikur og í lok frísins þá kom Sara í heimsókn til okkar. Sama dag og Sara kom þá fór Valdi til Parísar að spila. Hann kom tilbaka í tæka tíð til að fylgja systur sinni á flugvöllinn. Alla vegna það var rosa stuð að hafa Söru hjá okkur. Við vorum rosa mikið í bænum að versla með Söru, fórum út að borða og höfðum það rosalega gott. Ásta Indía gat leikið við Söru rosa mikið og svoleiðis. Alla vegna rosalegt stuð.
Um daginn var svo menningarhátíð í Oosterpark. Fólk frá Grikklandi, Marokkó, Tyrklandi, Brasilíu, Surinam, Eþíópíu og fleiri stöðum mættu í garðinn, seldu mat frá sínu heimalandi og voru með skemmtiatriði. Það var mikið um tónlist og dans og sýningar. Ásta Indía breyttist í tígrisdýr og fékk að fara í flotta hringekju.
Þegar við fórum í bæinn með Söru einu sinni þá hittum við líka vinkonu Ástu Indíu hana Gígju. Hún var í bænum ásamt pabba sínum og vinum mínum, sem voru í heimsókn hjá þeim. Það var rosa gaman að hitta hana Gígju, þær eru saman svo góðir bullarar. Þær gátu horft á brúðuleikhús á Dam torginu og hlupu svo um meðan við drukkum kaffi.
Við stefnum á að koma heim eftir rúman mánuð og ég og Ásta Indía förum líklegast ekki aftur út. Heldur erum við að hugsa um að búa með Halla frænda í nýju íbúð ömmu Ástu Kristínar og afa Sverris, sem þau eiga eftir að kaupa. Ásta Indía ætlar að reyna að fá aftur pláss á Undralandi, gamla leikskólanum sínum og ég ætla að reyna að fá að kenna einhvers staðar.
Ég set inn fleiri myndir núna. Myndir af Söru og Gígju og nokkrar montmyndir fyrir mig af eldhúsborðinu okkar sem ég er svo stolt af. Ég málaði það sko alveg sjálf.
Ekki meira í bili.
Bless, bless
Fjóla Dögg.
Hæ hæ.
Héðan er allt gott að frétta. Sól og sumar á hverjum degi í kringum 20 stiga hiti. Mmmm... á slíkum dögum þá langar manni ekkert til Íslands, þar sem slíkir dagar koma kannski einu sinni á ári. Í gær var drottningardagurinn haldinn hátíðlegur og vöknuðu allir sem ætluðu að vera úti að selja fyrir kl. 6 í morgun. Ásta Indía fékk skartgripaskrínið sitt á hausinn korter yfir 6 um morguninn og þá kíktum við aðeins út um gluggann og sáum að fólkið var byrjað að koma sér fyrir á gangstéttunum. við fórum svo ekkert á fætur fyrr en kl. 9 og þá var allt komið á fullt hérna. Við gengum aðeins um hverfið okkar þar sem stelpur máluðu fiðrildi framan í Ástu Indíu, en svo ákváðum við að kíkja í bæinn. Þar var allt troðið af fólki og á mörkunum að hægt væri að ganga um. Þar var aðallega hægt að borða, drekka og hlusta á tónlist, en í hverfunum er greinilega meiri markaðsstemning. Við komum aðeins við í Vondelpark, en sá garður er tekinn frá fyrir krakka, þar sem þeir sýna listir sínar og selja dótið sitt. Garðurinn var troðfullur enda helsti áningarstaður Amsterdambúa og svona sólríkum dögum, hvað þá á hátíðardegi sem þessum. Þetta er sko 17. júní Hollendinga og koma margir utan af landi í stórborgina, allir skreyttu appelsínugulu, sem er drottningarliturinn. Nú það eru nú fleiri en drottningarmóðirin sem eiga afmæli þennan dag, en drottningarmóðirin okkar, langamma Fjóla átti líka afmæli í gær, 92 ára.
Það eru svo mörg afmæli í vikunni, í dag á amma Ásta Kristín afmæli, 52 ára, á mánudaginn á Signý frænka afmæli, 25 ára og svo á föstudaginn þá á langamma Guðný afmæli, 75 ára. Hún og Signý ættu bara að halda saman uppá sameiginlegt 100 ára afmæli. Elfa frænka varð líka 40 ára á miðvikudaginn. Vá hvað hefði verið mikið að gera hjá okkur ef við hefðum verið á Íslandi. Við óskum afmælisbörnum vikunnar til hamingju með afmælin.
Moskítóflugurnar eru svo aðeins farnar að láta sjá sig, en Ásta Indía fékk eitt og svo fengum við okkur flugnanet yfir rúmin og þá hurfu flugurnar, en þær eru greinilega komnar aftur þar sem ég er komin með eitt á fingur, ætli ég hafi ekki stungið hendinni út úr netinu, þar sem þær vilja helst bíta mig nokkrum sinnum.
Það eru komnar fleiri myndir inní vormöppuna frá gærdeginum og aðeins í dag. Kíkið á þær.
Hafið það gott og góða skemmtun í afmælum.
Fjóla.